4. Maí
Umsjón: Ragna Kjartansdóttir.
Þessa viku fengum 9 ný lög inn á listann og óhætt að segja að Júróvision er á næsta leiti þar sem þrjú þeirra sem keppa í ár smella sér inn á topp 20 listann. Nú auk þeirra er vert að minnast á þau hin en þau eru:
Beck með Saw lightning, Lil Nas X með Old Town Road, Kött Grá Pjá með sitt framlag Rapp er ekki list, Eliot og Wake up, Marc Ronson & Likke Li með lagið Late Night Feelings og síðast en ekki síst Bruce Springsteen með lagið Hello Sunshine.
Topp 3 sætin að þessu sinni eru: Glowie sem sat í 3 vikur á toppnum og er nú komin í 3 sæti listans með Cruel, í öðru sæti er hún Bilie Eilish með Bad Guy og við bjóðum velkominn á toppinn hann Bubba Morthens með 5 vikur að baki á listanum og lagið hans Velkomin.