Vinsældalisti Rásar 2

Vinsældalisti Rásar 2

By RÚVMusic
Download on the App Store

Vinsældalisti Rásar 2 episodes

  • Þáttur 12 - Vinsældarlisti Rásar 2 vikuna 17. Mars- 23. Mars
    23. Mars
    Umsjón: Ragna Kjartansdóttir.
    Þessa viku fengum 4 ný íslensk lög en þau eru; stúlknasveitin Náttsól með lagið My boyfriend is gay, IAMHELGI með Speeding, Hafdís Huld með ábreiðu af lagi Dolly Parton The Bargain Store og Friðrik Ómar með Hvað ef ég get ekki elskað.
    Eitt nýtt erlent lag rataði inn á listann en það er lagið Beloved með Mumford & Sons.
    Í 3. sæti listans er Helgi Björns með lagið Vængir. Toppsæti síðustu viku stígur niður í annað sæti listans en það er hún Bríet með lagið Dino og beint á toppinn fer Hatari með Hatrið mun sigra.
    1 hr 55 min
  • Þáttur 11 - Vinsældarlisti Rásar 2 vikuna 10. Mars- 16. Mars
    16. Mars
    Umsjón: Ragna Kjartansdóttir.
    Þessa viku fengum 3 ný íslensk lög en þau eru:
    Snorri Helgason með lagið Við strendur Mæjorka, Herra Hnetusmjör sem nýtur aðstoðar Hugins, lagið þeirra Sorry Mamma og loks er það Hatari og lagið sem flest allir landsmenn þekkja; Hatrið mun sigra.
    Eitt nýtt erlent lag rataði inn á listann en það er lagið Beloved með Mumford & Sons.
    Í þriðja sæti listans er kántrísöngkonan Kacey Musgraves með Space Cowboy. Hástökkvari og nýjir inn á listan eru hvorki meira né minna en Hatari sem stekkur beint í annað sæti listans með okkar framlag til Eurovision í ár; Hatrið mun sigra. Toppsæti listans er óbreytt frá síðustu viku en það er hún Bríet sem situr sem fastast á toppnum og lagið hennar Dino.
    1 hr 55 min
  • Þáttur 10 - Vinsældarlisti Rásar 2 vikuna 3. Mars- 9. Mars
    9. Mars
    Umsjón: Ragna Kjartansdóttir.
    Þessa viku fengum 3 ný erlend lög en þau eru: Soak-Knock Me Off My Feet, Ian Brown- Ripples og Kacey Musgraves með Space Cowboy. Eitt nýtt en ekki nýtt lag rataði inn á listann en það er lagið lifetime með GusGus sem nýtur góðs af live flutningi af þessu lagi sem kom út í fyrra.
    Nú í 3. sæti listans eru þau Hjaltalín með Baronesse, annað sæti listans fer til Vök sem var á toppnum í síðustu viku með Erase You og við fáum nýtt toppsæti listans en það fer til hennar Bríetar með lagið Dino.
    1 hr 50 min
  • Þáttur 9 - Vinsældarlisti Rásar 2 vikuna 24. Febrúar- 2. Mars
    2. Mars
    Umsjón: Ragna Kjartansdóttir.
    Þessa viku fengum við 3 ný lög inn á listann, þau eru: Cage the elephant með Ready to let go, Billie Elish og Bury a friend og Bríet með lagið Dino.
    Warmland kemur sér fyrir í þriðja sæti listans, á meðan þrefaldir toppmeistarar Hjaltalín setjast niður í annað sætið sem þýðir að við fáum nýtt toppsæti þessa vikuna og það eru þau Vök með lagið Erase You.
    1 hr 54 min
  • Þáttur 8 - Vinsældarlisti Rásar 2 vikuna 17-23.Febrúar
    23. Febrúar
    Umsjón: Ragna Kjartansdóttir.
    Þessa viku fengum 2 ný lög en þau eru:
    Sam Smith& Normani með lagið Dancing With A Stranger og þær Myrra Rós og Elín Ey með lagið þeirra Savior.
    Ariana Grande kemur sér fyrir í þriðja sæti listans með lagið 7Rings. Warmland stendur í stað milli vikna í öðru sæti með lagið Further og þrefaldir toppmeistara þessa vikuna eru þau Hjaltalín og lagið þeirra Baronesse.
    1 hr 55 min
  • Þáttur 7 - Vinsældarlisti Rásar 2 vikuna 10-16.Febrúar
    16. Febrúar
    Umsjón: Ragna Kjartansdóttir.
    Þessa viku fengum við 4 ný lög en þau eru: Sigrid-Don't Feel Like Crying, Helgi Björns og lagið hans Vængir, Dua LIipa með Swan Song og The Ranconteurs og lagið Sunday Driver.
    Topp 3 lögin eru öll íslensk þessa vikuna. Hjaltalín í 1. sæti með Baronesse, Warmland í 2. sæti með Further og Vök gera harða atlögu að toppsætinu með laginu Erase you sem er í 3. sæti.
    1 hr 50 min
  • Þáttur 6 - Vinsældarlisti Rásar 2 vikuna 3-9.Febrúar
    9. Febrúar
    Umsjón: Ragna Kjartansdóttir.
    Þessa viku fengum 3 ný lög en þau eru: Vök með Erase You, Vampire Weekend og lagið Harmony Hall og síðast en ekki síst Ariana Grande með 7 Rings.
    Þriðja sæti listans fer til hennar Halsey með lagið Without Me. Hástökkvari vikunnar eru þeir Calvin Harris & Rag N Bone Man, þeir stökkva upp úr 17 sæti upp í annað sætið með Giant og á toppnum þessa vikuna er Hjaltalín og lagið þeirra Baronesse.
    1 hr 55 min
  • Þáttur 5 - Vinsældarlisti Rásar 2 vikuna 2. Febrúar
    2. Febrúar
    Umsjón: Ragna Kjartansdóttir.
    Þessa viku fengum 3 ný lög en þau eru eftirfarandi: Gesaffelstein og The Weeknd með lagið Lost In The Fire, The Specials með 38 ára comback og lag þeirra Vote For Me og íslenska hljómsveitin Warmland með lagið Further.
    Kacey Musgraves er hástökkvari vikunnar en hún stökk úr 17 sæti í það þriðja með lagið Slow Burn, Jónas Sig er enn í öðru sæti listans með lagið Milda Hjartað og á toppnum þessa 5. viku ársins situr Bandaríska söngkonan Halsey og lagið hennar Without Me.
    1 hr 55 min
  • Þáttur 4 - Vinsældarlisti Rásar 2 vikuna 20-26. Janúar
    26. Janúar
    Umsjón: Ragna Kjartansdóttir.
    Þessa viku fengum þrjú ný lög en þau eru eftirfarandi: Calvin Harris & Rag n Bone Man með lagið Giant, Richard Ashcroft og That's When I Feel It og hljómsveitin The Cranberries með lagið All Over Now.
    Bandaríska söngkonan Halsey og lagið hennar Without Me situr í þriðja sæti listans, hástökkvarinn Jónas Sig og hans lag - Milda hjartað er í öðru sæti listans og toppsætilistans er óbreytt frá síðustu og þar síðustu viku en á toppnum sitja þau Mark Ronson og Miley Cyrus með Nothing Breaks like a heart.
    1 hr 55 min

About Vinsældalisti Rásar 2

From the publisher's feed

Hvernig hljómaði vikan? Ragga Holm og Vilborg fara yfir 30 vinsælustu lög vikunar á Rás 2, alla laugardaga frá 16-18. Þær rifja upp vikuna, líta í baksýnisspegilinn og skoða smelli fyrri tíma, spá fyrir um hvaða lög eru líkleg til vinsælda. Skemmtilegt spjall og fróðleikur í bland, en fyrst og fremst frábær tónlist.