Stútfullur þáttur af ráðum fyrir alla sem stefna á að stofna eigið fyrirtæki, hvort sem það er verslun, vörumerki, þjónusta, námskeið, vara..... eða bara hugmynd sem er farin að biðja um að verða að einhverju stærra.
Arna og Margrét fara ítarlega yfir fyrstu skrefin við að byggja upp vörumerki, og það sem þarf að liggja fyrir áður en þú ferð í lógó, lén og Instagram.
– hvað þú ert í raun að selja
– hverjum þú ert að selja
– hvað gerir þig öðruvísi
– hvernig þú finnur markhópinn
– af hverju sagan skiptir máli
– hvernig þú heldur fókus
– hvað þarf að passa áður en þú ferð af stað
– og af hverju manneskjan á bakvið merkið skiptir máli
.....Og loksins talar Margrét almennilega um vörumerkið sitt. Hún segir frá sögunni á bakvið nafnið, hugmyndafræðinni og því sem hún er í raun að reyna að byggja upp.
Avelin Rae er ekki bara skartgripamerki, heldur vörumerki með skýra sýn á gæði, tímalausan stíl og hversdagslúxus.
Arna kemur svo með sitt sterka sjónarhorn úr vörumerkjavinnu og rekstri, spyr réttu spurninganna, setur hlutina í samhengi og gerir þetta bæði praktískt og skýrt.
💛 Samstarfsaðilar VÖRUMERKIS eru Skór.is, Kristall+, Góa, Tekk, Miðbær Selfoss og Oche.
💡 Sería 2 af VÖRUMERKI er framleidd með styrk frá Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu.
🎶 Sérstakar þakkir fyrir hljóð og myndvinnslu: Eyþór Úlfar Þórisson
📲 Fylgdu okkur á Instagram @vorumerki