WOOOM er hlaðvarp um heilsu, næringu, sambönd, langlífi, kulnun, kynlíf og andleg málefni. Við ræðum við fólk sem deilir af einlægni reynslu sinni, þekkingu og ólíkum sjónarhornum á lífið. Í samtölunum gefum við rými fyrir bæði gleðina og erfiðleikana, það sem mótar okkur og hjálpar okkur að skilja okkur sjálf og aðra betur. Markmið okkar er að skapa jákvætt og eflandi hlaðvarp sem hjálpar fólki að lifa með meiri meðvitund, betri heilsu og sterkari tengslum við sjálft sig og aðra.
Á WOOOM.is finnur þú einnig fréttir, greinar og viðtöl á íslensku og ensku, auk viðburða og námskeiða.