WOOOM HLAÐVARPIÐ

WOOOM HLAÐVARPIÐ

Download on the App Store

All WOOOM HLAÐVARPIÐ episodes

  • Halldóra Geirharðsdóttir leikkona um Human Design: Að lifa í takt við eigin orku

    Leikkonan Halldóra Geirharðsdóttir segir frá því hvernig Human Design hefur hjálpað henni að skilja sjálfa sig betur, taka meðvitaðri ákvarðanir og finna sinn eigin takt í lífinu.

    Halldóra hefur lengi haft áhuga á sjálfsþekkingu og kynnt sér ýmis kerfi, allt frá stjörnuspeki til Enneagramsins. Fyrir rúmum þremur árum kynntist hún Human Design og fann þar nálgun sem höfðaði sérstaklega til hennar.

    „Það sem heillaði mig var að það var ekki verið að segja mér hver ég væri, heldur hvernig ég nota orkuna mína.“

    Human Design er sjálfsþekkingarkerfi sem byggir á fæðingardegi, fæðingartíma og fæðingarstað. Samkvæmt hugmyndafræðinni getur svokallað líkamskort gefið vísbendingar um hvernig við nýtum orkuna okkar og tökum ákvarðanir.

    Fyrir Halldóru hefur þessi nálgun meðal annars kennt henni að hægja á sér og gefa sér tíma áður en hún tekur mikilvægar ákvarðanir. Hún segir kerfið einnig hafa aukið skilning sinn á ólíkum þörfum fjölskyldumeðlima.

    Eftir að hafa upplifað kulnun í kjölfar mikils vinnuálags þurfti Halldóra að endurskoða forgangsröðun sína. Hún hætti kennslu og steig út úr leikhúsinu til að skapa meira rými fyrir sjálfa sig. Human Design varð síðar eitt af verkfærunum sem hjálpuðu henni að skilja eigin þarfir betur.

    Halldóra leggur áherslu á að Human Design sé ekki eina leiðin að sjálfsþekkingu.

    „Ég tek það sem hjálpar mér og sleppi hinu.“

    Boðskapur hennar er einfaldur: Við þurfum ekki öll að fara sömu leið í lífinu. Mikilvægast er að finna hvað hentar okkur sjálfum og þora að lifa í samræmi við það.

    54 min
  • Þórunn Birna Guðmundsdóttir um nálastungur og austræna læknisfræði

    Í þriðja þætti WOOOM hlaðvarpsins ræðum við við Þórunni Birnu Guðmundsdóttur um nálastungur, austræna læknisfræði og tengsl líkama og huga. Hún segir frá eigin reynslu, námi og starfi og mikilvægi þess að finna það sem hentar hverjum og einum.

    Þórunn Birna Guðmundsdóttir, doktor í austrænni læknisfræði, segir frá því hvernig eigin glíma við exem á unglingsárum vakti áhuga hennar á mataræði og náttúrulegum leiðum til að bæta heilsuna. Leitin hófst með móður hennar, sem fór með henni til ýmissa meðferðaraðila, og leiddi hana síðar í nám í Kaliforníu.

    Þórunn lærði og starfaði í Los Angeles og segir frá ólíkum viðhorfum til nálastungna og austrænnar læknisfræði þar og hér á landi. Hún lítur á forvitni sína sem drifkraft í starfinu og ver frítímanum gjarnan í að lesa rannsóknir um líkamann og þær aðferðir sem hún vinnur með.

    Við ræðum hvað felst í nálastungumeðferð og hvernig Þórunn nálgast fólkið sem kemur til hennar. Hún útskýrir hvernig samtal, púlsmælingar og skoðun á tungu eru hluti af mati hennar samkvæmt kínverskum lækningahefðum. Einnig segir hún frá notkun sogskála, jurta og ráðgjafar um mataræði og lífsstíl í starfi sínu.

    Tengsl líkamlegrar og andlegrar líðanar eru meðal umræðuefna þáttarins, ásamt streitu, meltingu, verkjum og daglegum venjum. Þórunn leggur áherslu á að fólk hafi ólíkar þarfir og að það sem hentar einum henti ekki endilega öðrum. Hún deilir einnig eigin morgunvenjum og segir frá því hvers vegna hún kýs að byrja daginn á heitum mat.

    Við ræðum líka styrkleika austrænnar og vestrænnar læknisfræði, hvenær Þórunn vísar fólki áfram til lækna og von hennar um meira samstarf milli þessara ólíku nálgana. Í lok þáttar les Elín í stjörnukort og talnaspeki Þórunnar.

    Forvitnilegt samtal um ólíkar leiðir til að nálgast heilsuna, tengslin við náttúruna og að læra að hlusta á eigin líkama.

    1 hr 5 min
  • Elín Ellingsen og Ragnar Gunnarsson | Hugmyndin á bak við fjölmiðilinn og nýsköpunarfyrirtækið WOOOM

    Í öðrum þætti hlaðvarpsins segja stofnendurnir Elín Ellingsen og Ragnar Gunnarsson frá hugmyndinni á bak við fjölmiðilinn og nýsköpunarfyrirtækið WOOOM. WOOOM er vefur um líkama, huga og sál, með fréttum, greinum á íslensku og ensku, viðburðadagatali og hlaðvarpi með viðtölum við fólk sem deilir reynslu sinni af einlægni. Þættirnir eru aðgengilegir á Spotify og Apple Podcasts.

    Ragnar segir frá því þegar hann fór að endurmeta líf sitt og leita leiða til að tengjast sjálfum sér upp á nýtt. Hann fann að það var erfitt að vita hvar ætti að byrja, hvar rétta fólkið væri og hvaða námskeið og viðburðir væru í boði. Tilviljanakenndur fundur þeirra Elínar í IKEA varð kveikjan að samstarfinu, þar sem markaðsreynsla hans og áralöng vinna Elínar með fólki og andleg málefni mættust.

    Þau ræða markmiðið með WOOOM: að búa til jákvæðan og uppbyggilegan miðil og samfélag sem tengir fólk saman, því einmanaleiki er orðinn einn stærsti vandi okkar tíma. Þau fara yfir greinarnar, sem allar byggja á heimildum og rannsóknum, meðal annars seríur um svefn og ástina, greinar um tíðahringinn fyrir feður, kynþroska drengja fyrir mæður, talnaspeki og erfiðar tilfinningar eins og skömm, reiði og afbrýðisemi.

    Þau ræða einnig markmiðið með því að gera WOOOM að vettvangi þar sem fólk getur fundið viðburði, námskeið og sérfræðinga á sviði vellíðunar á einum stað. Með því vilja þau tengja saman fólk, hugmyndir og fagfólk og auðvelda öllum að finna innblástur, ráðgjöf og stuðning.

    Ef þú ert með viðburði, námskeið eða vinnustofur framundan hvetjum við þig til að skrá þau á WOOOM og ná þannig til fólks sem hefur áhuga á heilsu, vellíðan og sjálfsrækt, bæði Íslendinga og erlendra gesta.


    21 min
  • Ingibjörg Stefánsdóttir | Yogashala: Að hlusta á líkamann og leyfa sér að hvíla

    Ingibjörg Stefánsdóttir, eigandi Yogashala, segir frá því hvernig jóga kom inn í líf hennar og lönguninni til að skapa samfélag fyrir fólk á öllum aldri. Við ræðum öndun, streitu, sjálfsþekkingu og að læra að hlusta á líkamann. Ingibjörg deilir einnig persónulegri reynslu af erfiðum tímabilum og því að finna jafnvægi milli þess að gera og leyfa sér að hvíla.

    Ingibjörg kynntist jóga í dans- og leiklistarnámi í New York um miðjan tíunda áratuginn. Kennarinn hennar hitaði hópinn upp með sólarhyllingum og hún fann strax að eitthvað nýtt gerðist þegar öndun og hreyfing runnu saman. Leiðin lá síðan til Los Angeles, nokkrum sinnum til Indlands og loks heim, þar sem hún stofnaði Yogashala árið 2005. Draumurinn var að skapa stað fyrir alla, og í dag eru nemendur í kennaranáminu frá 18 ára aldri upp í sjötugt.

    Hún lítur á sig sem eilífan nemanda og hefur nýlokið þriggja ára námi í jógaþerapíu. Í dag vinnur hún mikið með einstaklingum sem glíma við kvíða, þunglyndi, svefnleysi og kulnun, og segir frá því hvernig hún nálgast hvern og einn á ólíkan hátt.

    Við ræðum líka hvers vegna okkur þykir svo erfitt að vera kyrr með sjálfum okkur, hvernig líkaminn talar þegar við ýtum tilfinningum frá okkur, og jafnvægið milli karl- og kvenorku: milli þess að framkvæma og að leyfa sér að taka á móti. Ingibjörg segir frá því sem hún vildi að hún hefði vitað þrítug, frá lífinu með þrjá unglinga á tímum snjallsímans og hvers vegna hún mætir framtíðinni með trausti frekar en ótta.

    Í lok þáttar les Elín í stjörnukort og talnaspeki Ingibjargar.

    Einlægt og hlýtt samtal um ljós og skugga, og um að vaxa í gegnum erfiðleikana.


    49 min