X26 Sveitarstjórnarkosningar

X26 - Mosfellsbær: oddvitar mætast


Listen Later

Það stefnir í spennandi kosningar í Mosfellsbæ en Mosfellingar þurfa nú að gera upp hug sinn milli sex framboða fyrir sveitarstjórnarkosningarnar sem fram fara 16. maí næstkomandi. Í síðustu kosningum voru framboðin sjö, en Vinstrihreyfingin – grænt framboð býður ekki fram í bæjarfélaginu að þessu sinni.

Oft er talað um Mosfellsbæ, sem er á norðaustanverðum jaðri höfuðborgarsvæðisins, sem sveit í borg vegna nálægðar bæjarfélagsins við náttúruna. Enginn skortur er því á byggingarlandi í bæjarfélaginu en óhætt er að segja að uppbygging á Blikastaðalandi hafi verið í brennidepli að undanförnu og er fyrirhuguð uppbygging þar síður en svo óumdeild.

Þeir Sævar Birgisson oddviti Framsóknar, Hilmar Gunnarsson oddviti Sjálfstæðisflokks, Michele Rebora, sem skipar þriðja sæti á lista Vina Mosfellsbæjar, Ólafur Ingi Óskarsson oddviti Samfylkingarinnar, Gylfi Þór Þorsteinsson oddviti Viðreisnar og Sveinn Óskar Sigurðsson oddviti Miðflokks tókust á í myndveri Mogunblaðsins og mbl.is í Hádegismóum.

...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

X26 SveitarstjórnarkosningarBy Ritstjórn Morgunblaðsins