Sveitarstjórnarmál í Fjallabyggð snúast nú að stórum hluta um grunninnviði, samgöngur, skólamál og endurreisn stjórnsýslunnar eftir erfitt kjörtímabil. Þetta kemur fram í samtali við oddvita þeirra þriggja lista sem bjóða fram í sveitarfélaginu fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar.
Viðtalið fer fram í Menntaskólanum á Tröllaskaga, en Fjallabyggð varð til árið 2006 við sameiningu Ólafsfjarðarbæjar og Siglufjarðarkaupstaðar. Sveitarfélagið er nyrst á Tröllaskaga og samgöngumál hafa alla tíð verið eitt stærsta hagsmunamál íbúanna. Strákagöng og Héðinsfjarðargöng breyttu stöðu byggðarlaganna verulega, en nú beinist athyglin að fyrirhuguðum Fljótagöngum og mögulegum nýjum göngum til Eyjafjarðar.
Þrjú framboð eru í kjöri: D-listi Sjálfstæðisflokksins, undir forystu Tómasar Atla Einarssonar, H-listinn, Fyrir heildina, undir forystu Helga Jóhannssonar, og S-listi Jafnaðarmannafélags Fjallabyggðar og óháðra, undir forystu Jóhanns K. Jóhannssonar.