Sign up to save your podcasts
Or

Leikskólamál, fjármál bæjarins, samgöngusáttmálinn og framtíðaruppbygging á Seltjarnarnesi voru meðal helstu ágreiningsefna í oddvitakappræðum Morgunblaðsins og mbl.is vegna sveitarstjórnarkosninganna 16. maí.
Þátttakendur voru Þór Sigurgeirsson, bæjarstjóri og oddviti Sjálfstæðisflokksins, Kristinn Ólafsson, oddviti Samfylkingar, Viðreisnar og óháðra, og Skafti Harðarson, oddviti Miðflokksins og annarra.
Seltjarnarnes er eitt minnsta sveitarfélag landsins að flatarmáli en þar búa um 4.600 manns. Þótt frambjóðendur væru sammála um að bærinn væri eftirsóknarverður til búsetu kom skýrt fram að tekist er á um rekstur, forgangsröðun og framtíðarsýn.
By Ritstjórn MorgunblaðsinsLeikskólamál, fjármál bæjarins, samgöngusáttmálinn og framtíðaruppbygging á Seltjarnarnesi voru meðal helstu ágreiningsefna í oddvitakappræðum Morgunblaðsins og mbl.is vegna sveitarstjórnarkosninganna 16. maí.