X26 Sveitarstjórnarkosningar

X26 - Vilja blása til sóknar í Húnaþingi vestra


Listen Later

Morgunblaðsmenn eru mættir í Húnaþing vestra á ferð sinni um Norðurland fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 16. maí. Sveitarfélagið varð til 7. júní 1998 en fékk núverandi mynd árið 2012 þegar Bæjarhreppur sameinaðist því.

Helstu byggðir eru Hvammstangi, Laugarbakki, Reykir og Borðeyri, en sveitarfélagið er víðfeðmt og nær frá Arnarvatni og Holtavörðuheiði, norður Strandir að Stikuhálsi og út á Vatnsnes.

Í sveitarfélaginu búa um 1.250 manns. Í síðustu kosningum fékk B-listi Framsóknar og annarra framfarasinna þrjá fulltrúa, D-listi Sjálfstæðismanna og óháðra tvo og N-listi, Nýtt afl í Húnaþingi vestra, tvo.

Sömu þrjú framboð bjóða nú fram á ný.Oddvitar þeirra eru Sigurður Líndal Þórisson fyrir B-lista, Örn Arnarson fyrir D-lista og Viktor Ingi Jónsson fyrir N-lista. B- og D-listi hafa myndað meirihluta á kjörtímabilinu.

...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

X26 SveitarstjórnarkosningarBy Ritstjórn Morgunblaðsins