Handboltinn okkar

Yfirferð um kærumál Stjörnunnar og KA/Þórs - Braut Valur sóttvarnarlög? -Slúðurmolar


Listen Later

48.þáttur af Handboltinn okkar kom út í kvöld en að þessu sinni fengu þeir Jói og Gestur, Sævar Pétursson framkvæmdarstjóra KA til í spjall og fóru yfir stöðuna á kærumálinu eftir leik Stjörunnar og KA/Þórs í Olísdeild kvenna. Sævar lýsti furðu sinni yfir niðurstöðu áfrýjuardómstóls HSÍ og sagði jafnframt að forsvarsmenn KA/Þórs væru að velta fyrir sér næstu skrefum en það yrði áfrýjun til dómstóls ÍSÍ og þeir myndu líklega taka ákvörðun um það á morgun þriðjudag. Norðanmenn óttast mjög hvaða fordæmi þessi dómur geti gefið þegar að kemur mistökum við framkvæmd leikja og velta því  jafnframt fyrir sér að hann geti mögulega orðið fordæmisgefandi fyrir aðrar íþróttagreinar. Þá fóru þeir félagar yfir það að sögur hermi að Valsmenn hafi æft af fullum krafti í æfingabanninu og þar með brotið sóttvarnarlög sem verður að teljast alvarlegt mál ef satt reyndist og hvöttu þeir félagar hreinlega HSÍ til að kanna málið.   

 

Næsti þáttur hjá þeim félögum verður svo á fimmtudaginn þar sem þeir munu fara yfir leiki dagsins í Olísdeild karla ásamt því að rýna í landsleik kvenna á milli Íslands og Slóveníu í forkeppni HM.

...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Handboltinn okkarBy Handboltinn okkar