Skoðanabræður

#10 Skoðanir Karó


Listen Later

•Í draumi sérhvers manns er fall hans falið, sagði skáldið, en Skoðanabræður kafa bókstaflega dýpra: Í eista sérhvers karlmanns er draumur hans falinn. Og Hitler missti annað eistað og það var ekki draumaeistað, því ljóst var að hann dreymdi allt fram á hinsta dag. Hið sama gildir um hinn meðalhvíta unga karl sem þarf ekki nema sopa af bjór til að fara að tala um næstu sigra.
•Þetta eru hásálfræðilegar vangaveltur, það liggur svo sem fyrir að ekkert er Skoðanabræðrum óviðkomandi, en þeir njóta hér liðsinnis næstum því sálfræðimenntaðs karlmanns vikunnar. Nefnilega Karó(línu) Jóhannsdóttur. Hún er ekki freudisti, frekar en Bergþór, sem lætur hugann reika á meðan Karó og Snorri ræða fræðin. Hér er tilefni til að biðjast afsökunar.
•(Frjáls framlög til frjálsra ritstjórna eins og Skoðanabræðra eru meira en vel þegin og eru raunar skyldubundin á sinn hátt fyrir dygga hlustendur. Númerið er 661-4648. Aur eða Kass.)
•Skoðanabræður sérhæfa sig í að ætla að fara yfir fréttir vikunnar en gera það ekki. Hér fara Skoðanabræður því út fyrir rammann og gera raunverulega það sem þeir eiga að gera: fara yfir fréttir vikunnar. 
•Og hvað er meira í fréttum en piece of shit loftslagsmálin? Karó er með loftslagskvíða enda kona. Sem hugsar um að eignast börn. Viðraðar hugmyndir um líffræðilegan mun á körlum og konum, sem er náttúrulega fullkomlega sígild og óumdeild pæling. Kynslóð foreldra okkar sá von. Við sjáum óvon. Og þó.
•Borgarlínan vefur sig eins og höggormur um hin ýmsu viðfangsefni sem hér bera á góma, frjálshyggja berst í tal og flóttamenn og hælisleitendur. Allt rætt af yfirvegun og sanngirni, eins og hefðin býður.
•Svo hafa Skoðanabræður verpt einu páskaeggi inn í þáttinn, eða þremur, sem sagt litlum glaðningi fyrir karlmenn með drauma í eistunum um að tala spænsku einn daginn. Með öðrum orðum: Hún segist ekki reykja en ef ég kveiki í jónu tekur hún hit. 
•Skoðanabræður eru frjálst hlaðvarp og þeir starfa, eins og kveðið var á um í öndverðu, á vegum Útvarps 101.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SkoðanabræðurBy Bergþór Másson

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

35 ratings


More shows like Skoðanabræður

View all
Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

150 Listeners

Þarf alltaf að vera grín? by Þarf alltaf að vera grín?

Þarf alltaf að vera grín?

218 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

24 Listeners

FM957 by FM957

FM957

28 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

91 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

26 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

13 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

71 Listeners

Teboðið by Birta Líf og Sunneva Einars

Teboðið

32 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

31 Listeners

Þungavigtin by Tal

Þungavigtin

23 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

21 Listeners

Ólafssynir í Undralandi by Útvarp 101

Ólafssynir í Undralandi

11 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

34 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

9 Listeners