Skoðanabræður

#12 Skoðanir Þóru Tómasdóttur


Listen Later

•„Þetta er svo viðbjóðslegt og rótgróið stéttahatur,“ segir Snorri. „Svona Facebook-hópar á Íslandi eru bara viðbjóðslegir,“ segir Bergþór. „Þetta er ekki fyndinn hópur,“ segir Þóra. Þetta eru ekki góðar umsagnir. Hlustið áfram til að vita hvaða hóp ræðir um.
•Þóra Tómasdóttir blaðamaður og almennur kóngur er Karlmaður vikunnar í vikunni, sá elsti til þessa. Og sennilega sá greindasti, yfirvegaðasti og áhugaverðasti að öllum öðrum ekkert það mikið löstuðum. Þóra þekkir Skoðanabræður persónulega og af opinberum vettvangi, enda þeir opinberar og mikilsvirtar persónur, en telur ekki æskilegt að annar þeirra fái of mikil völd. Það er spurning um hvorn það á við. Sá vægir þar sem vitið hefur meira, eins og eilíft gildir.
•(Skoðanabræður er frjálst hlaðvarp, framleitt með hagsmuni þjóðarinnar fyrir brjósti. Það má styðja þá vegferð með því að leggja henni fé í s. 661-4648 á Aur eða Kass.)
•LungA er haldin hátíðleg um þessar mundir og í þættinum er kastað kveðju á þá hlustendur sem taka upp á því að stunda kynlíf í tjöldum. En þess þarf auðvitað ekki að geta hér í kynningu þáttarins.
•Og Þóra tæki aldrei þátt í eins óviðurkvæmilegum kveðjuköstum enda komin vel á fertugsaldur. Hún hefur önnur lög að mæla, eins og ígrundaðar vangaveltur um aukna pólaríseringu í viðhorfum fólks, það er hin umrædda síbreikkandi gjá á milli stjórnmálaskoðana ólíkra hópa og víðsjárverða sundurlyndið sem hlýst af henni. Á þeim nótum kom gaurinn sem kom Donald Trump í embætti til Íslands á sínum tíma. Þóra segir frá því.
•Ekki bara pólitík heldur öllu mikilvægara: lífið og hvernig er hægt að lifa af í þessu viðbjóðslega þjóðfélagi. Þóra er reynslunni ríkari og þekkir leiðina út, því eins og skáldið spurði, og margir hafa velt fyrir sér síðan, hvert fer maður, ef það er engin leið út úr heiminum. Svarið leynist í þessum þætti af Skoðanabræðrum.
•Þetta einstaka efni er á vegum Útvarps 101 og er aðgengilegt á öllum helstu hlaðvarpsveitum.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SkoðanabræðurBy Bergþór Másson

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

35 ratings


More shows like Skoðanabræður

View all
Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

463 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

146 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

27 Listeners

FM957 by FM957

FM957

28 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

88 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

26 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

10 Listeners

Beint í bílinn by Sveppalingur1977

Beint í bílinn

28 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

30 Listeners

Þungavigtin by Tal

Þungavigtin

23 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Ólafssynir í Undralandi by Útvarp 101

Ólafssynir í Undralandi

13 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

10 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

22 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

7 Listeners