Skoðanabræður

#18 Skoðanir Ara Mássonar, bróður Skoðanabræðra


Listen Later

Lífið er veisla, segir höfundur þess frasa, Ma King, blóðbróðir Skoðanabræðra, sem forðum var dæmdur til ævarandi hippadóms. En það er næs og ráðstöfunin sver sig ekki í ætt við örlög Sýsifosar, hún er jákvæð, eins og rætt er í þessum þætti. Líklega öllu betri en líf ritstjóra Skoðanabræðra.

Þessi þáttur er einn af tveimur bónusþáttum Skoðanabræðra, sem þeir láta ókeypis í té hlustendum sínum eftir þrálátar óskir um meira efni, meiri Skoðanabræður, meiri veislu. Kalli þeirra er svarað. Kalli Skoðanabræðra eftir styrkjum, þ.e. mannsæmandi launum fyrir sín störf, ætti líka að vera svarað og það getur verið gert með því að AURA eða KASSA í númerið 661-4648. Síðasta tækifæri til að koma skilaboðum á framfæri í þættinum er núna. En áfram verður hægt að styrkja um aldur og ævi, á meðan nafn Skoðanabræðra lifir.

Ari Ma (Másson) varð auðvitað að koma í viðtal. Hann er sjö árum eldri en yngsti Skoðanabróðirinn, Snorri, og fimm árum eldri en Bergþór. Hann kenndi þeim flest sem þeir kunna, þó að síðar meir hafi þeir lært sitthvað upp á eigin spýtur og hér snýr hann aftur til að kenna þeim allt upp á nýtt.

Hann hefur búið mikið til erlendis síðasta að verða áratug, í Taílandi, Suður-Ameríku, í Nepal, í Amsterdam, í Marokkó, í Indlandi, í Tyrklandi, á Spáni, í Bandaríkjunum og hver veit hvar í andskotanum. Þar hefur hann látið sér detta í hug allan fjandann til að gera, og gæti nú hvergi annars staðar hugsað sér að búa en einmitt þar: alls staðar. Hann vinnur þó sem landvörður á Íslandi á sumrin.

Ýmislegt rætt í þessum þætti, draumarnir, hugsjónirnar, eiturlyfin ef þau eru einhver, og reynt að komast að niðurstöðu um hvernig má lifa fordómalaus í þessari guðsvoluðu veröld. Hugleiðsla kann að vera lykilorð í því sambandi. Og klifur!

Veröldin veltist um svo fast en Skoðanabræður og þeirra bróðir skeyta ekki um það, þeir halda áfram siglingu sinni en haga síður en svo seglum eftir vindi, engir hentistefnumenn, heldur bara saklausir samfélagsrýnar sem hafa þennan óljósa grun um, að lífið sé eftir allt veisla.

...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SkoðanabræðurBy Bergþór Másson

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

35 ratings


More shows like Skoðanabræður

View all
Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

150 Listeners

Þarf alltaf að vera grín? by Þarf alltaf að vera grín?

Þarf alltaf að vera grín?

217 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

25 Listeners

FM957 by FM957

FM957

28 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

91 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

23 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

13 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

75 Listeners

Teboðið by Birta Líf og Sunneva Einars

Teboðið

32 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

32 Listeners

Þungavigtin by Tal

Þungavigtin

24 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

23 Listeners

Ólafssynir í Undralandi by Útvarp 101

Ólafssynir í Undralandi

12 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

31 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

10 Listeners