Skoðanabræður

#19 Skoðanir Jakobs Birgissonar


Listen Later

Velkomin í Live Fílalag! Í dag fílum við göndulinn á Jakobi Birgissyni í beinni á Port 9, þátturinn afrakstur þeirrar kynlegu iðju. En fyrst: Svívirðum þá sem melduðu sig en mættu ekki, tóku þannig pláss frá þeim sem raunverulega vildu koma, þeim sem raunverulega eru meðlimir í Skoðanabræðralaginu, þeim sem setja virðingu á annarra manna nöfn.

Þessi þáttur er einn af tveimur bónusþáttum Skoðanabræðra, sem þeir láta ókeypis í té hlustendum sínum eftir þrálátar óskir um meira efni, meiri Skoðanabræður, meiri veislu. Kalli þeirra er svarað. Kalli Skoðanabræðra eftir styrkjum, þ.e. mannsæmandi launum fyrir sín störf, ætti líka að vera svarað og það getur verið gert með því að AURA eða KASSA í númerið 661-4648. Síðasta tækifæri til að koma skilaboðum á framfæri í þættinum er núna. En áfram verður hægt að styrkja um aldur og ævi, á meðan nafn Skoðanabræðra lifir.

Jakob Birgisson er king uppistandari, góðvinur Skoðanabræðra og tölfræðilega líklegasti karlmaður vikunnar. Hér ræðir hann það sem Skoðanabræður ræða best: eiturlyf, klám og hörundsára krossfittara. Auðvitað af sömu nærgætni og endranær, Skoðanabræður eru meistarar aðgátar hafðar í nærveru sálar.

Þessi Skoðanabræðraþáttur er sérstakur að því leyti að áfengi var haft við hönd, sem ef til vill var í hæsta máta óæskilegt, en var alltént gert. Það gefur tjáningunni lausari tauminn, enda ærið tilefni til ráðstafana sem stuðla að því, á víðsjárverðum tímum, þar sem þrengt er að tjáningarfrelsinu úr öllum áttum.

Tímum, þar sem nauðsynlegt er að stofna embætti eins og barnaperraráðherra.

Það líður að lokum þessarar vegferðar og viðeigandi að þar stígi Jakob inn og bendi á það sem miður hefur farið, og það sem betur má fara á komandi tímum. Þátturinn er innlegg inn í þá uppbyggilegu umræðu sem ávallt fer fram á þessum vettvangi, og hefur ávallt gert. Og vel er að merkja, að þó að fýsískt hafi aðildin verið átt á Port 9, þeim virðingarverða stað, er vettvangurinn Útvarps 101.

Allt sem er sagt um Íslandsbanka í þessum þætti er ósatt. En það er athyglisvert, og varð að koma fram.

...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SkoðanabræðurBy Bergþór Másson

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

35 ratings


More shows like Skoðanabræður

View all
Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

150 Listeners

Þarf alltaf að vera grín? by Þarf alltaf að vera grín?

Þarf alltaf að vera grín?

218 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

24 Listeners

FM957 by FM957

FM957

28 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

91 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

26 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

13 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

71 Listeners

Teboðið by Birta Líf og Sunneva Einars

Teboðið

32 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

31 Listeners

Þungavigtin by Tal

Þungavigtin

23 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

21 Listeners

Ólafssynir í Undralandi by Útvarp 101

Ólafssynir í Undralandi

11 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

34 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

9 Listeners