Hver er munurinn á samskiptum og samfélagsmiðlum? Er verið að þróa nýtt tungumál á netinu? Þurfa allir að fara í háskóla?
Í þessum þætti fæ ég til mín dansarana Önnu Guðrúnu Tómasdóttur og Júlíu Kolbrúnu Sigurðardóttur til að leita svara við ofangreindum spurningum og fleirum. Við ræðum meðal annars TikTok og dans, iðnnám og háskóla. Loks lítum við til framtíðar og skoðum hvaða hlut samskipti munu eiga þar.
Kæri hlustandi, kíktu á Vísi.is þar sem finna má klippur úr nýjustu þáttunum. Síðan væri vel þegið ef þú gætir sagt EINNI manneskju frá Heimsendi - má vera hver sem er - þá færðu gott Karma í skóinn.
Sjáumst hress!