Skoðanabræður

#21 Skoðanabræður snúa aftur


Listen Later

Landvarðarbrundið! Það er hinn heiðni helgi safi sem grundvallaði þessa þjóð í öndverðu – og heldur áfram að gera það á kojufylleríum í hinum ýmsu þjóðgörðum landsins. Þetta er fólkið sem er ekki á Instagram, en tryggir í gegnum aðrar göfugri boðleiðir framgöngu kynstofns okkar.
Að vera ekki á Instagram er svo sem eitthvað fyrir aðra en bara skinhelgar síðhærðar skeggjaðar lopapeysur: Skoðanabræður hoppa um borð í þann vagn, alltént Bergþór. Hann ætlar að hætta á Instagram í febrúar, bylting, segir hann, febrúarbylting, bætir Snorri um betur, orðhagur og sagnfræðilega meðvitaður höfundur þessa texta hér.
Verið velkomin í aðra seríu af Skoðanabræðrum, helsta hlaðvarpi landsins, sem smeygir sér nú inn í eyru ykkar í fullkomlega tærri og óbreyttri mynd, að breyttu reyndar breytanda, sem var fjárhagsmódelið og fáein önnur atriði. Héðan í frá er þetta gersamlega ókeypis fyrir ykkur hlustendur, og á sama tíma erum við farnir í farsælt samstarf við framúrskarandi fyrirtæki: Forlagið, AUR og 101 Sambandið.
Kóðinn til þess að kaupa Við erum ekki morðingjar eftir Dag Hjartarson sem hljóðbók á afsláttarkjörum (ný skáldsaga á 990kr) á forlagid.is er SKODUN. Kóðinn til þess að fá 60 GB frí þegar þú gengur í Sambandið á sambandid.is er SKODUN.
Í þessum fyrsta þætti er allur andskotinn ræddur, eins og einmitt verðmætir kynstofnar, eins og þeir sem koma við sögu fyrr í þessari lýsingu. Snorri er staddur í Berlín þar sem hann rannsakar ásamt kraftmiklum krökkum yfirburði og eiginleika norræna kynstofnsins, á vegum félags sem heitir því viðeigandi nafni Norðurvígi. Hann segir okkur frá ýmsu spennandi af þeim frjóa vettvangi.
Bergþór lýsir síðan áhyggjum sínum af Instagram, samfélagsmiðlum, en trúir að Skoðanabræður geti komið góðu til leiðar með því að halda áfram að bera út boðskapinn. Femínískan boðskap segir hann, enda hans hagsmunir, kvenkyns sjálfur. Og þetta grín er smellibeita og aðeins skrifað svo að þú sperrir eyrun og setjir Skoðanabræður í gang. Hér er ráða auðvitað jafnréttisviðhorf ríkjum.
Karlmaður vikunnar að þessu sinni er ekki neinn, heldur er baneitruð karlmennska Snorra látin tala sínu máli. Á næstu vikum verða þó gestir í þáttunum, og þar er hvaðeina spennandi framundan. Það breytir því ekki að smávægileg stefnubreyting hefur orðið, sem felst í að þættirnir bera ekki nafn viðmælanda, heldur njóta efnislega sannmælis útaf fyrir sig, enda annað andrósentrismi, sem Skoðanabræður láta seint kenna sig við. Þið fáið sem sé fyrirsagnir, bitastærð við ykkar hæfi, smánautnaseggir.
Skoðanabræður eru eins og ævinlega afurð Útvarps 101. Þeir eru framleiddir í samstarfi við Forlagið, AUR og 101 Sambandið.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SkoðanabræðurBy Bergþór Másson

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

35 ratings


More shows like Skoðanabræður

View all
Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

463 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

146 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

27 Listeners

FM957 by FM957

FM957

28 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

88 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

26 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

10 Listeners

Beint í bílinn by Sveppalingur1977

Beint í bílinn

28 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

30 Listeners

Þungavigtin by Tal

Þungavigtin

23 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Ólafssynir í Undralandi by Útvarp 101

Ólafssynir í Undralandi

13 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

10 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

22 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

7 Listeners