Skoðanabræður

#23 Strákur vikunnar og útsmogni alþjóðadildóinn


Listen Later

– Ath. látið ekki glepjast af ögn síðri gæðum fyrstu sjö mínúturnar en vera skyldi. Það batnar, rétt eins og orðfærið, eftir því sem líður á þáttinn. –

Að vera avókadó eða að vera ekki avókadó, þarna er efinn, enda avókadó lýsingarorð málfræðilega. Í Southampton í Bretlandi er avókadóstigið í sögulegu lágmarki, ekki síst eftir að íslenskur stjórnmálafræðinemi ákvað að flytjast þangað í skiptinám í heilt ár. Sá tók þá ákvörðun grandalaus um að málum yndi fram með þeim hætti sem varð: Oddur Þórðarson liggur með Kórónavírusinn á stúdentagörðum í Englandi og bíður eftir Brexit og dauðanum. Ef íslensk stjórnvöld þurfa að velja hvort hann lifi eða deyi, telur hann víst að síðari kosturinn verði ofan á.

Í samræmi við grundvallarlögmál hinnar tælandi en svikulu fyrstu málsgreinar flestra þáttalýsinga Skoðanabræðra, stendur auðvitað ekki steinn yfir steini í ofangreindu, nema ef til vill aðeins að því leyti sem það er satt, að Oddur er í Southampton, hann er með sjúkdóma og Brexit nálgast, skapadægur alþjóðasamstarfs eins og við þekkjum það. Oddur er strákur vikunnar í Skoðanabræðrum, sem innleiða þann dagskrárlið hér mit Pomp und Pracht, strák vikunnar, stuttan karlmann. Í viðburðaríkri fréttaviku er síðan, ásamt því sem rætt er við Odd um Brexit á yfirvegaðan hátt, farið yfir allt það helsta, öllu blandað saman en með því um leið skerpt á huldum tengingum á milli stóru málanna, sem the Corrupt Media vill ekki að þú sjáir.

Er ljóðalöggan Stefán Eiríksson pólitískur agent (lesist eins og Ameríkuagent, Vestur-Íslendingarnir ykkar) sem kominn er inn á RÚV til að ganga erinda huldumanna? Líklega ekki. En hann var ráðinn á grundvelli stjórnunarhæfileika, en ekki reynslu af rekstri fjölmiðla, en hver segir að maður þurfi hana, ég meina, þetta snýst bara um rekstur fjölmiðils. Mun hann laga leitarvélina (gefið að laga megi hluti sem eru ekki til), mun hann endurreisa RÚV Núll (sem var reyndar bara frumreist fyrir mjög stuttu) eða bara sigla áfram hinn lygna sjó menningarstéttaofbeldisins sem dynur á óbreyttum landsmönnum dag eftir dag af hálfu stofnunarinnar? Þessu svarað, eða raunar bara varpað fram sem spurningum í ábyrgðarleysi að hætti hússins.

Við höfum RÚV; hví þá ekki að ríkisvæða Bíó Paradís? Varhugaverð þróun, kynnu frjálshyggjulúserar að segja, en aðrir skynsamir þó einnig að hugsa með sjálfum sér, en ekki segja upphátt. Varla fer ríkið að grípa inn í – hvar var það þá þegar WOW air? Tillaga: Gammavæðum Bíó Paradís, Bíó Gamma, minnisvarði um fallið félag og hamslausa misþyrmingu markaðslögmálanna á verðmætum okkar. Einum bíósalnum  gæti verið breytt í íslenskt míkró Maddam Tussauds, Gísli Hauksson fyrsti munur þess safns, lifandi og talandi í kaupbæti .

Skoðanabræður eru í boði AUR og 101 Sambandsins. AUR, besta leiðin til að flytja peninga. 101 Sambandið, símafélagið sem býður þér hagstæðustu símadílana. Auraðu Skoðanabræður í síma 661-4648 og segðu þína skoðun. Gakktu í sambandið á sambandid.is og fáðu 60GB (mjög mikið) frí, bara með því að nota kóðann SKODUN.

...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SkoðanabræðurBy Bergþór Másson

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

35 ratings


More shows like Skoðanabræður

View all
Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

465 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

145 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

27 Listeners

FM957 by FM957

FM957

28 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

89 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

26 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

10 Listeners

Beint í bílinn by Sveppalingur1977

Beint í bílinn

28 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

31 Listeners

Þungavigtin by Tal

Þungavigtin

23 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Ólafssynir í Undralandi by Útvarp 101

Ólafssynir í Undralandi

13 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

10 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

22 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

7 Listeners