Skoðanabræður

#25 Kynsjúkdómsins Köben, kínverjinn með klinkið og höfnun sem hluti af lífi þínu


Listen Later

Mamma, hvernig verða kynsjúkdómar til? Við viðskiptafræðideildir, bláeyga flón.
Skoðanabræður – fæddir um og upp úr miðjum tíunda áratug tuttugustu aldar – þeir þekkja ekki reynsluheim kvenmanns fædds 1999, svo ekki sé talað um það ef kvenmaðurinn hefur framfæri sitt af því að selja blíðu sína, sem er einmitt ekki tilfelli stráks vikunnar, Ísabellu Lenu!
Sálfræðinemi, barstarfsmaður, þekkingarmaður leiksins, hefur verið í honum í þónokkur ár og hvað gerist þá: Maður eldist, eldist og eldist og loks úreldist, sem nú er orðin yfirvofandi ógn. Hvað gerist þegar 02 módelum er farið að finnast maður gamall? Þau geta troðið því upp í rassgatið á sér og sest við fótskörina á sér vitrari mönnum, eins og goonhjörðin hefur einmitt þegar gert – þeir mynda Skoðanabræðralagið.
Ísabella heiðrar bræðralagið að þessu sinni með nærveru sinni og miðlar af reynslunni. Hvað gerist á Tinder í Kaupmannahöfn? Er það þar sem einmana lúserskiptinemalúser getur nálgast nakið hjarta þjóðarinnar – eða gerir hann ekki annað en að hitta sjálfan sig fyrir, einmana útlending í ókunnu landi? Eða verra: rasískan drykkfelldan bældan andfeminískan Dana. Bældur Dani er svosem eftirlendustefnulega Skoðanabræðrum að skapi, ástand sem sver sig í ætt við þá stefnu sem þeir boða í kynferðismálum; skírlífi. Skírlífi rætt, auðvitað, og maður myndi halda slík tímaskekkja hefði í það minnsta lágmarkspresens í röðum yfirborðslega siðaðra CBS-manna, að það leyndist innan bláu skyrtnanna, en því síður! Hér liggur hundurinn grafinn – og kynsjúkdómarnir á klúbbnum,  þangað sem Húrra Reykjavík leitar þegar staffið bregður undir sig betri fætinum, fer til Köben og stígur  léttan dans. Er það dans hinna dauðu?
Skoðanabræður birtast hér í sinni fullkomnustu mynd – hljóðbyltingin er orðin. Önnur bylting er á leiðinni, sem von er á að farið verði nánar út í áður en menn vita af. Hér má gefa þetta upp: Þáttunum mun fjölga sem þýðir að þú munir hlusta meira. Gasið mun flæða inn um eyrun – allt á vegum Útvarps 101 og í heilbrigðu og góðu samstarfi við AUR.
Loks: „Alls staðar fólk, potandi í símann með tappa í eyrunum, músik!“ segir Bergþór ekki þegar hann hefur upp raust sína um miðbik þáttar og heldur einræðu um Spotify, enda er hann ekki Ólafur Grímur Björnsson að skrifa minningargrein um prentara á Þjóðviljanum. Hjá Bergþóri kveður við ögn fágætari, yfirvegaðri og heilbrigðari tón en vandinn er í hlaðvarpi þessu, nokkuð sem væri ef til vill æskilegt að leitast við að endurtaka þegar fram líða stundir, möguleiki sem verður tekið fyrir á stjórnarfundi Skoðanabræðra í vikunni sem hefst eftir ömurlega Valentínusarhelgina sem gnæfir yfir óöruggum brundspreyjurum þessa lands eins og hótun, eins og bros.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SkoðanabræðurBy Bergþór Másson

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

35 ratings


More shows like Skoðanabræður

View all
Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

150 Listeners

Þarf alltaf að vera grín? by Þarf alltaf að vera grín?

Þarf alltaf að vera grín?

218 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

24 Listeners

FM957 by FM957

FM957

28 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

91 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

26 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

13 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

71 Listeners

Teboðið by Birta Líf og Sunneva Einars

Teboðið

32 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

31 Listeners

Þungavigtin by Tal

Þungavigtin

23 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

21 Listeners

Ólafssynir í Undralandi by Útvarp 101

Ólafssynir í Undralandi

11 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

34 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

9 Listeners