Skoðanabræður

#29 GDRN, Human Centipede skíðayfirstéttarinnar og eiginkonan sem æviráðin hóra


Listen Later

„Skækjan – það er eiginkonan; eiginkonan – það er skækjan. Aðra kaupi ég til samneytis við mig ævilángt … Hina kaupi ég til samneytis við mig eina nótt.“
Skoðanabræður gerast svo djarfir að mótmæla þessari tvígreiningu kvenna sem má lesa um í skáldsögu frá því snemma á 20. öld. Í hvaða bók? spyr sig sá sem gengur svo langt að lesa þetta klór. Upplýsingar þar um finnast inni í miðjum þættinum, sem þýðir að orðin sem þú ert að lesa eru smellibeita. Þú ert ormétinn og úrkynjaður lax úr eldiskví sem silast niður eftir lækjarsprænu og bítur loks á agnið, sem sé hlustar á þáttinn. Svona flýturðu sofandi undan ævistraumi og þinn feigðarós er hjákátlegur hlaðvarpsþáttur; hafðu fyrir alla muni hugfast í millitíðinni það sem góðskáldinu rataðist forðum á munn, að lasta því síður laxinn, sem „leitar móti straumi sterklega og stiklar fossa.“
Straumurinn stendur ekki í vegi fyrir Skoðanabræðrum sem eru umræddur heilbrigður lax svo myndmálið fái hér áfram að njóta sín; þeir eru villtur lax. Þess vegna segja þeir það sem They – kapítalið – vill ekki að sagt verði. Meiriháttar uppljóstranir gerðar í þættinum, sem lúta að fjölmiðlavaldi, tæknivaldi og kaupmannavaldi. Þeim mun mikilvægara er að Skoðanabræður geti haldið áfram vegferð sinni; AUR eða KASS í síma 661-4648.
Karlmaður vikunnar er engin önnur en Guðrún Ýr Eyfjörð, GDRN, söngkonan sem þið hafið að líkindum haft á fóninum allar götur síðan ykkur barst sá fögnuður til eyrna, að út væri komin ný plata. GDRN veitir hér fyrsta viðtal eftir að hún hreppti verðlaun sem söngkona ársins á einhverjum hlustendaverðlaunum í gær; og hvað ber framtíðin í skauti sér, er spurt. Óvíst – líklega ekki eiturlyfjafíkn. Og þó.
Annað vitaskuld rætt: metafóran í meme-inu, hin héðan af forboðna gredda hlaðvarpsformsins og ekki óskylt henni, hin karnivalíska mennska margfætla sem skíðayfirstéttin myndaði í Austurríki, upp á vesturíslensku eitt loftþétt Human Centipede sem liðaðist um íburðarmikil salarkynni skíðaskálans endilöng, grandalaust um vá þá er vofði yfir mönnunum; þegar ljósin voru kveikt voru almannavarnir ekki lengi að lýsa yfir neyðarástandi. 
Skoðanabræður eru frjálst og sjálfstætt hlaðvarp á vegum Útvarps 101.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SkoðanabræðurBy Bergþór Másson

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

35 ratings


More shows like Skoðanabræður

View all
Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

465 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

145 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

27 Listeners

FM957 by FM957

FM957

28 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

89 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

26 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

10 Listeners

Beint í bílinn by Sveppalingur1977

Beint í bílinn

28 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

31 Listeners

Þungavigtin by Tal

Þungavigtin

23 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Ólafssynir í Undralandi by Útvarp 101

Ólafssynir í Undralandi

13 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

10 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

22 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

7 Listeners