4. vaktin

4. vaktin

By Hlaðvarpið 4 vaktinEducation
Download on the App Store

4. vaktin episodes

  • 35. SMA - Guðný móðir barns með SMA týpu 1

    Við verðum að afsaka það að hljómgæðin eru ekki þau bestu í þessum þætti. En við náðum þó að laga þau töluvert. Það gæti verið að það komi eins og hökt stöku skipti en á heildina litið ætti þetta að sleppa mjög vel og okkur fannst innihald þáttarins of gott til að setja hann ekki inn.

    Hún Guðný Ása Bjarnadóttir er móðir drengs sem er með SMA týpu 1. Hún kom til okkar í einlægt spjall. Hún ásamt sambýlismanni og barnsföður sínum bjuggu á Ísafirði en fluttust til Reykjavíkur eftir greiningu hjá stráknum þeirra til að vera nær þeirri þjónustu sem þau þurfa. Má benda á þau eru ekki eina fjölskyldan sem hefur séð sig tilneydda til að flytja vegna þjónustuþarfa sem er ekki hægt með góðu móti að koma til móts við á landsbyggðinni.

    Strákurinn þeirra er sá fyrsti sem hefur farið í genameðferð erlendis vegna SMA. En ein lyfjagjöf kostar nálægt 300 milljónum en er talinn geta lofað góðu og mögulega verið bylting í lyfjum við SMA.

    Þetta eru þær upplýsingar sem koma upp við leit af SMA1 en á örstuttum tíma hafa orðið byltingarkenndar framfarir í lyfjum gegn þessum framsækna og erfiða taugahrörnunarsjúkdómi.

    SMA I – Werding Hoffmann Disease

    Greining á börnum með gerð I af SMA er venjulega gerð fyrir 6 mánaða aldur og í flestum tilvikum fyrir 3 mánaða aldur. Þau geta ekki setið óstudd, eiga erfitt með andardrátt og að kyngja. Rúmlega helmingur þeirra einstaklinga sem haldnir eru SMA sjúkdómnum eru með SMA á stigi I og látast þeir flestir fyrir tveggja ára aldur, en aðrir hafa lifað allt fram að unglingsárum.

    Við bendum á félagið FSMA á Íslandi sem er félag aðstandenda og einstaklinga sem haldnir eru SMA sjúkdómnum, Spinal Muscular Atrophy, á Íslandi. Tilgangur félagsins er að gæta hagsmuna þeirra einstaklinga sem haldnir eru SMA sjúkdómnum og aðstandenda þeirra. Tilgangur félagsins er einnig að stuðla að því að lækning finnist sem fyrst við sjúkdómnum og miðlun upplýsinga honum tengdum, jafnt til þeirra sem tengjast sjúkdómnum beint sem og til almennings.

    Þessi þáttur er í boði:

    -Góðvildar - Styrktarfélagið Góðvild hefur það markmið að styðja við verkefni sem bæta hag langveikra og fatlaðra barna á Íslandi og fjölskyldna þeirra. Hægt er að styrkja Góðvild og með því er verið að styðja við fjöldann allan af verkefnum sem bæta hag langveikra og fatlaðra barna. 

    godvild.is - Kt. 660117-2020 Reikn. 0301-26-660117

    -Sjónarhóls - Ráðgjafarmiðstöðin Sjónarhóll er fyrir fjölskyldur barna með sérþarfir. Þjónustan er ókeypis og ekki er þörf á tilvísun. Það eru allir velkomnir.

    Eitt helsta markmið Sjónarhóls er að stuðla að því að forráðamenn barna með stuðningsþarfir geti nýtt sér almenna lögbundna þjónustu og komist í samband við önnur úrræði sem gætu gagnast þeim.

    sjonarholl.is

    1 hr 2 min
  • 34. SMA - Ísak Sigurðsson

    Við fengum hann Ísak Sigurðsson til okkar í einlægt spjall en hann er með taugahrörnunarsjúkdóminn SMA eða Spinal Muscular Atrophy sem lýsir sér með skertum vöðvastyrk.

    Alvarleiki sjúkdómsins eru mjög einstaklingsbundinn og spannar allt frá því að viðkomandi lætur lífið, skömmu eftir fæðingu, til þess að sjúkdómurinn hefur tiltölulega lítil áhrif á líf viðkomandi. En miklar framfarir og myndi maður vilja nota orðið bylting sem hefur átt sér stað undanfarið með lyf sem eiga að hægja á eða stöðva framþróun sjúkdómsins.

    Ísak hefur setið í stjórn samtakanna FSMA sem er félag aðstandenda og einstaklinga sem haldnir eru SMA sjúkdómnum, Spinal Muscular Atrophy, á Íslandi. Sem meðal annars vinna að fjáröflun til styrktar ransóknum á sjúkdómnum.

    Aðal fjáröflun félagsins hefur verið með sölu bola. Það eru bláir og rauðir t-bolir og svo hvítir aðsniðnir með v-hálsmáli.Einnig er hægt að leggja frjáls framlög á reikning okkar 0315-26-002380 kennitalan er 650902-2380.

    Inná heimasíðu samtakanna er einnig að finna heimildarmynda Stórfljót sem er um stutta ævi Elvu Bjargar Egilsdóttir.  Elva Björg var með SMA I og lést hún 2010.

    55 min
  • 33. SMA - spinal muscular atrophy.

    Þessi þáttur er í boði:

    -Góðvildar - Styrktarfélagið Góðvild hefur það markmið að styðja við verkefni sem bæta hag langveikra og fatlaðra barna á Íslandi og fjölskyldna þeirra. Hægt er að styrkja Góðvild og með því er verið að styðja við fjöldann allan af verkefnum sem bæta hag langveikra og fatlaðra barna. 

    godvild.is - Kt. 660117-2020 Reikn. 0301-26-660117

    -Sjónarhóls - Ráðgjafarmiðstöðin Sjónarhóll er fyrir fjölskyldur barna með sérþarfir. Þjónustan er ókeypis og ekki er þörf á tilvísun. Það eru allir velkomnir.

    Eitt helsta markmið Sjónarhóls er að stuðla að því að forráðamenn barna með stuðningsþarfir geti nýtt sér almenna lögbundna þjónustu og komist í samband við önnur úrræði sem gætu gagnast þeim.

    sjonarholl.is

    Í þessum þætti fjöllum við um tauga- vöðva hrörnunarsjúkdóm sem kallast SMA eða spinal

    muscular atrophy.

    SMA er sjaldgæfur tauga- vöðvahrörnunarsjúkdómur.

    46 min
  • 32. Alda Pálsdóttir iðjuþjálfi

    Þessi þáttur er í boði:

    Góðvildar - Góðvild hefur það markmið að styðja við verkefni sem bæta hag langveikra og fatlaðra barna á Íslandi og fjölskyldna þeirra.

    Skynörvun verslun, Síðumúla 23 -gengið inn Selmúla meginn.

    Sem sèrhæfa sig í að bjóða uppá gæða skynörvunarvörur fyrir bæði börn og fullorðna.

    Hlustendur hlaðvarpsins fá 15 % afslátt í netverslun skynorvun.is með kóðanum 4vaktin

    Til að hafa samband við Öldu:

    aldapals.com

    Við fengum hana Öldu í spjall til okkar og við rættum streitu í lífi foreldra fatlaðra og langveikra barna, bjargráð, taugakerfið okkar, skynjun og fleira. Virkilega áhugavert og gagnlegt spjall.

    Alda sinnir börnum, ungmennum og fullorðnum sem glíma við sálfélagslegan vanda út frá áfalla- og tengslamiðaðri iðjuþjálfun. Auk þess býður hún upp á náttúrutengda íhlutun og meðferð utandyra bæði fyrir einstaklinga og hópa.

    Áhrif streitu og áfalla á færni.
    Kulnun, ADHD, Kvíði og þunglyndi.

    Skynúrvinnsla og áhrif áreita í umhverfi á líðan og færni við iðju.

    Framkvæmdafærni (Exceutive Functioning) og virkni í daglegu lífi.

    Jafnvægi í daglegu lífi- milli einstaklings, iðju og umhverfis.

    1 hr 7 min
  • 31. Svanborg Gísladóttir erfðalæknir

    Þessi þáttur er í boði:

    Góðvildar - Góðvild hefur það markmið að styðja við verkefni sem bæta hag langveikra og fatlaðra barna á Íslandi og fjölskyldna þeirra.

    Skynörvun verslun, Síðumúla 23 -gengið inn Selmúla meginn.

    Sem sèrhæfa sig í að bjóða uppá gæða skynörvunarvörur fyrir bæði börn og fullorðna.

    Hlustendur hlaðvarpsins fá 15 % afslátt í netverslun skynorvun.is með kóðanum 4vaktin

    Í þessum þætti fáum við til okkar hana Svanborgu Gísladóttur sem er nýútskrifaður erfðalæknir og starfar nú á erfðadeild Landspítalans. Svanborg er víðlesin, með langan menntaferil og einnig víðtæka starfsreynslu.

    Svanborg fræðir okkur um erfðir, DNA og fleira.

    Það var virkilega áhugavert að fá að spjalla við hana og spyrja hana spurninga.

    Mælum með að láta þennan þátt ekki framhjá ykkur fara.

    1 hr 3 min
  • 30. Skólakot grunnskólaúrræði fyrir börn og unglinga með fjölþættan vanda.

    Þessi þáttur er í boði:

    Góðvildar - Góðvild hefur það markmið að styðja við verkefni sem bæta hag langveikra og fatlaðra barna á Íslandi og fjölskyldna þeirra.

    Skynörvun verslun, Síðumúla 23 -gengið inn Selmúla meginn.

    Sem sèrhæfa sig í að bjóða uppá gæða skynörvunarvörur fyrir bæði börn og fullorðna.

    Hlustendur hlaðvarpsins fá 15 % afslátt í netverslun skynorvun.is með kóðanum 4vaktin

    Skólakot er í Hafnarfirði.Jakob Fannar Stefánsson - Klínískur sálfræðingur Ásdís Halla Einarsdóttir - Klínískur atferlisfræðingur

    Vinna bæði hjá Skólakoti og komu til okkar og sögðu okkar frá starfinu sem er unnið í Skólakoti, hvernig hugmyndafræði er unnið eftir og hvernig þau vinna að því að efla og styrkja þau börn sem koma í skólann.

    1 hr 7 min
  • 29. AHC - Spjall við Sigurð faðir hennar Sunnu stelpu með AHC

    Þessi þáttur er í boði:

    Góðvildar - Góðvild hefur það markmið að styðja við verkefni sem bæta hag langveikra og fatlaðra barna á Íslandi og fjölskyldna þeirra.

    Skynörvun verslun, Síðumúla 23 -gengið inn Selmúla meginn.

    Sem sèrhæfa sig í að bjóða uppá gæða skynörvunarvörur fyrir bæði börn og fullorðna.

    Hlustendur hlaðvarpsins fá 15 % afslátt í netverslun skynorvun.is með kóðanum 4vaktin

    Hann Sigurður Hólmar kom til okkar og sagði frá lífi fjölskyldu sinnar en dóttir hans sem er fædd árið 2006 hún Sunna er með taugasjúkdóminn AHC. Þetta er afar sjaldgæfur sjúkdómur og er Sunna sú eina hérlendis með þennan sjúkdóm. Sigurður hefur talað opinskátt um hennar veikindi og líf þeirra og gerði meðal annars myndina Human time bomb sem er heimildarmynd um AHC. Þessi mynd hefur ekki hjálpað öllu AHC samfélaginu á heimsvísu.

    Við viljum benda öllum þeim sem hafa tök á að styðja við AHC samtökin en þeir styrkir renna beint í rannsóknir á AHC.

    1 hr 7 min
  • 28. Primal Iceland - Íris Huld Guðmundsdóttir

    Þessi þáttur er í boði:

    Góðvildar - Góðvild hefur það markmið að styðja við verkefni sem bæta hag langveikra og fatlaðra barna á Íslandi og fjölskyldna þeirra.

    Skynörvun verslun, Síðumúla 23 -gengið inn Selmúla meginn.

    Sem sèrhæfa sig í að bjóða uppá gæða skynörvunarvörur fyrir bæði börn og fullorðna.

    Hlustendur hlaðvarpsins fá 15 % afslátt í netverslun skynorvun.is með kóðanum 4vaktin

    Við fengum hana Írisi til okkar til þess að fræða okkur um öndun og hvernig hún getur verið bjargráð við streitu, hvað er streita og segja okkur frá líkamsræktar stöðinni Primal Iceland sem hún ásamt eiginmanni sínum Einari Carl Axelsyni eiga. Íris er menntaður íþróttafræðingur, markþjálfi og vottaður Buteykoþjálfari.

    Íris Huld kennir námskeiðið Kröftugar konur, Sigrum streituna og Primal Lífsstíl.

    Í Primal Iceland eru bæði í boði einkatímar og hópþjálfun og við mælum með að skoða hvað er í boði.

    Kíktu á úrvalið á primal.is

    1 hr 1 min
  • 27. AHC - Alternating hemiplegia of childhood taugasjúkdómur

    Í þessum þætti fræðumst við um AHC sem er skammstöfun af Alternating hemiplegia of childhood.

    AHC er afar sjaldgæfur taugasjúkdómur.

    Þessi þáttur er í boði:

    Góðvildar - Góðvild hefur það markmið að styðja við verkefni sem bæta hag langveikra og fatlaðra barna á Íslandi og fjölskyldna þeirra.

    Skynörvun verslun, Síðumúla 23 -gengið inn Selmúla meginn.

    Sem sèrhæfa sig í að bjóða uppá gæða skynörvunarvörur fyrir bæði börn og fullorðna.

    Hlustendur hlaðvarpsins fá 15 % afslátt í netverslun skynorvun.is með kóðanum 4vaktin

    24 min
  • 26. Sigrún ADHD og einhverfu markþjálfi eigandi Míró markþjálfun og ráðgjöf

    Í þessum þætti kemur Sigrún sem er með Míró markþjálfun til okkar en hún er þroskaþjálfi og sérhæfir sig í ADHD og einhverfu markþjálfun. Einnig er hún lærður Yoga Nidra kennari og býður upp á Yoga Nidra tíma. Hún býður upp á einstaklingstíma og hefur verið með fjölda námskeiða ásamt því að sitja í stjórn ADHD samtakanna. Hún fékk sjálf ADHD greiningu á fullorðinsárum eftir að börnin hennar fóru í greiningarferli. Sigrún er mikil fagmanneskja, djúpvitur og hefur í mörg ár unnið með börnum, unglingum og fullorðum einstaklingum. Hún vann í skólakerfinu sem þroskaþjálfi í um 18 ár. Við förum um víðan völl í spjallinu okkar. Við mælum með að enginn missi af þessum þætti.

    Þessi þáttur er í boði:

    Góðvildar - Góðvild hefur það markmið að styðja við verkefni sem bæta hag langveikra og fatlaðra barna á Íslandi og fjölskyldna þeirra.

    Skynörvun verslun, Síðumúla 23 -gengið inn Selmúla meginn.

    Sem sèrhæfa sig í að bjóða uppá gæða skynörvunarvörur fyrir bæði börn og fullorðna.

    Hlustendur hlaðvarpsins fá 15 % afslátt í netverslun skynorvun.is með kóðanum 4vaktin

    56 min

About 4. vaktin

From the publisher's feed

Við heitum Sara Rós Kristinsdóttir og Lóa Farestveit Ólafsdóttir og erum mæður á 4. vaktinni. Þegar við tölum um 4. vaktina þá erum við að vitna í þær vaktir sem við erum ósjálfrátt sett á í lífinu…