4. vaktin

4. vaktin

By Hlaðvarpið 4 vaktinEducation
Download on the App Store

4. vaktin episodes

  • 15. Downs heilkenni - Spjall við Diljá Ámundardóttir Zoëga móðir

    Í þessum þætti fáum við til okkar hana Diljá sem er forsetamamma Lunu sem er 6 ára gömul. Diljá er mikill aktvisti og hefur beitt sér mikið að jafnréttismálum. Við förum um víðan völl í umræðunum okkar og í heildina áttu við virkilega einlægt spjall. Því lífið er jú allskonar.


    Þessi þáttur er í boði:

    Góðvildar - Góðvild hefur það markmið að styðja við verkefni sem bæta hag langveikra og fatlaðra barna á Íslandi og fjölskyldna þeirra.


    Skynörvun verslun, Síðumúla 23 -gengið inn Selmúla meginn.

    Sem sèrhæfa sig í að bjóða uppá gæða skynörvunarvörur fyrir bæði börn og fullorðna.

    Hlustendur hlaðvarpsins fá 15 % afslátt í netverslun skynorvun.is með kóðanum 4vaktin


    1 hr 11 min
  • 14. Down-heilkennið

    Þessi þáttur fjallar um Down heilkennið.

    Okkur langar að benda á downs.is heimasíðu samtakanna.

    Félagið stendur fyrir og stuðlar að samveru félagsmanna, stendur fyrir og veitir fræðslu um Downs heilkennið og um hagsmunamál félagsins.

    Félagið sinnir réttindagæslu og gæti hagsmuna einstaklinga með Downs heilkenni á opinberum vettvangi og með beinum hætti þegar við á.

    Heilkenni er hópur af ýmsum einkennum sem geta komið fram í líkama fólks, eða heild einkenna. Down-heilkenni er ekki sjúkdómur eða galli en stundum fylgja heilkenninu heilbrigðisvandamál eða erfiðleikar.Down-heilkenni er eðlilega tilkomin litningasamsetning sem alltaf hefur verið til og er þekkt um heim allan, þvert á kynþætti, kynferði og félags- og efnahagslegar markalínur.

    Þessi þáttur er í boði:

    Góðvildar - Góðvild hefur það markmið að styðja við verkefni sem bæta hag langveikra og fatlaðra barna á Íslandi og fjölskyldna þeirra.


    Skynörvun verslun, Síðumúla 23 -gengið inn Selmúla meginn.

    Sem sèrhæfa sig í að bjóða uppá gæða skynörvunarvörur fyrir bæði börn og fullorðna.

    Hlustendur hlaðvarpsins fá 15 % afslátt í netverslun skynorvun.is með kóðanum 4vaktin



    50 min
  • 13. Spjallið við Góðvild

    Í þessum þætti kemur Sigurður Hólmar Jóhannesson sem kemur að Góðgerðarfélaginu Góðvild sem var stofnað í desember 2016. Góðvild hefur það markmið að styðja við verkefni sem bæta hag langveikra og fatlaðra barna á Íslandi og fjölskyldna þeirra.Góðvild kemur að ýmsum verkefnum.


    Viljum benda á: Hjálparlínu Góðvildar er þjónusta fyrir fjölskyldur langveikra barna. Fjölskyldur þurfa ekki að greiða fyrir þjónustuna.

    Við mælum svo sannarlega með að missa ekki af þessum þætti og heyra um allt það áhugaverða sem Góðvild kemur að.

    1 hr 10 min
  • 9. Saga einhverfunnar

    Í þessum þætti stiklum við á stóru í sögu einhverfunnar. Þetta er því miður ofboðslega sorgleg saga að mörgu leyti en okkur finnst mikilvægt að tala um hana til að við getum fagnað því að við séum komin lengra og einnig til að við getum átt samtalið um hvernig við getum gert enn betra.

    51 min
  • 8. Masking

    Hvað er að maska?

    Í þessum þætti förum við yfir hvað það er að maska og hvaða afleiðingar það getur haft fyrir einhverfa.

    26 min
  • 7. Að stimma

    Hvað er stimm og að stimma?


    Þessi þáttur er stuttur þáttur þar sem við útskýrum hugtakið stimm.

    12 min
  • 6. Skólaforðun eða Skólahöfnun?

    Hvað er skólahöfnun?

    Við viljum taka út orðið skólaforðun vegna þess að okkur finnst það vera að segja að barnið sé vandinn en ekki að það sé ekki verið að mæta þörfum barnsins.

    Hvernig getum við unnið með þessum hóp barna?

    31 min

About 4. vaktin

From the publisher's feed

Við heitum Sara Rós Kristinsdóttir og Lóa Farestveit Ólafsdóttir og erum mæður á 4. vaktinni. Þegar við tölum um 4. vaktina þá erum við að vitna í þær vaktir sem við erum ósjálfrátt sett á í lífinu…