Skoðanabræður

#42 Sólveig Anna formaður Eflingar, móðursýki auðvaldsins, tilgangur lífsins og framtíð íslensks rapps


Listen Later

03:00 Áslaug Arna eyðileggur Child 04:23 viðtal við Sólveigu Önnu Jónsdóttur formann Eflingar 33:50 mikilvægi sannleikans 35:30 Instagram story afmæliskveðjur 38:20 ólík samskipti við ólíkt fólk 40:33 fjórtán ára stelpa í viðtali við Liberal Media 44:00 ADHD fjárglæpamaðurinn 51:00 Evran og saga Evrópusambands 58:00 músík sem verður til þegar allt er að hrynja 59:30 þróun íslensks rapps 01:11 Travis Scott og ógeðslegir átta ára strákar 01:15 Drake og textaþjófnaður 01:18:37 Larry David og Trump 01:22:30 Twitter 01:25:45 plokka eigin geirvörtu með hamri 01:30:25 fjölmiðlar og Facebook 01:36:40 stefnumótun og tilgangur 01:44:05 opnið á veisluna og taka psychedelics 01:46:15 vatn á púlsinn



Fræg er sagan af því, hjóta fræðimenn framtíðar segja, þegar Skoðanabræður fengu til viðtals Sólveigu Önnu Jónsdóttur formann Eflingar. Niðurstaðan varð eitthvert ágætasta viðtal sem þeir bræður hafa tekið og líklega það eina þeirra sem á eitthvert raunverulegt skynsamlegt erindi við þjóðina.

Það er 1. maí og allir vita hvað það þýða: Afmæli Snorra Mássonar. Afmælisdepurðin ætti að ráða ríkjum í dag, en hver veit hvort sólinni takist að skyggja að einhverju leyti á hana. Snorri óskar sér aðeins eins í afmælisgjöf frá bræðralaginu og þeim ætti að vera nokkuð hægt um vik: Skjáskot og story, heyra nánar í þættinum.

Og það er 1. maí og allir vita hvað þýða, atriði tvö: Alþjóðlegur baráttudagur verkalýðsins. Eins og nóbelskáldið lagði Ljósvíkingnum barnaníðingi í munn, eru „erfiðir tímar“, það er „atvinnuþref“, og kvæðið, sem átti að vera klaufalegt, er í raun ískyggilega nákvæmt á tímum kórónukreppunnar. Ég er semsé að tala um Maístjörnuna, og sem ég skrifa og gúgla verð ég æ ánægðari með hana, raunar svo að til þess gæti komið að ég láti það slá hér botninn í þáttarlýsinguna. Það væri ekkert nema viðeigandi, þar sem nú sem aldrei fyrr er þörf á að huga að hagsmunum heildarinnar og þar er verkafólk í meirihluta. Það, og margt annað helvíti ferskt í þætti dagsins, til dæmis frásögn af ævintýralegum fjárdrætti Viðreisnarmanns.

-

Ó hve létt er þitt skóhljóð

ó hve leingi ég beið þín,

það er vorhret á glugga,

napur vindur sem hvín,

en ég veit eina stjörnu,

eina stjörnu sem skín,

og nú loks ertu komin,

þú ert komin til mín.

-

Það eru erfiðir tímar,

það er atvinnuþref,

ég hef ekkert að bjóða,

ekki ögn sem ég gef,

nema von mína og líf mitt

hvort ég vaki eða sef,

þetta eitt sem þú gafst mér

það er alt sem ég hef.

-

En í kvöld lýkur vetri

sérhvers vinnandi manns,

og á morgun skín maísól,

það er maísólin hans,

það er maísólin okkar,

okkar einíngarbands,

fyrir þér ber ég fána

þessa framtíðarlands.

...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SkoðanabræðurBy Bergþór Másson

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

35 ratings


More shows like Skoðanabræður

View all
Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

150 Listeners

Þarf alltaf að vera grín? by Þarf alltaf að vera grín?

Þarf alltaf að vera grín?

218 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

24 Listeners

FM957 by FM957

FM957

28 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

93 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

25 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

14 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

71 Listeners

Teboðið by Birta Líf og Sunneva Einars

Teboðið

32 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

33 Listeners

Þungavigtin by Tal

Þungavigtin

23 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

19 Listeners

Ólafssynir í Undralandi by Útvarp 101

Ólafssynir í Undralandi

11 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

34 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

9 Listeners