Skoðanabræður

#5 Skoðanir Birgittu Lífar


Listen Later

Flóni var á B5 um helgina. Skoðanabræður hafa sagt frá öðru eins og frásögnin væri ekki í frásögur færandi nema fyrir þær sakir að hún er í frásögur færandi. Flóni straujaði Apple Pay kortið fyrir 200 þúsund kall. En sagan er ekki þar með sögð því annar var aðili að máli.

– Sá er enginn annar en sú hin eina sanna, Birgitta Líf Björnsdóttir. Hún er þjóðinni að góðu einu kunn og hana þarf vart að kynna sérstaklega.

–(Styrkið Skoðanabræður með Aur eða Kass í síma 661-4648)

–Birgitta Líf er karlmaður vikunnar! „Heiður,“ segir hún. „Kom mér á óvart,“ segir hún. „Skoðanabræður er fremsti vettvangur ígrundaðrar þjóðfélagsumræðu á Íslandi og þið eruð fæddir útvarpsmenn,“ segir hún ekki.

–En hún segir ýmislegt. Það er erfitt að vera umdeildur. World Class, Ungfrú Ísland, Instagram, B5, Verzló, smábílar, stórir bílar, staðgreidd íbúð og lán hjá banka. 

–They (hinn almenni hatari) eru áfjáðir í að rægja þá sem ná minnsta árangri, á hvaða vettvangi sem það kann að vera, jú, allir lúserar landsins mættir til að fella kónginn er ekki sjaldséð sviðsmynd þessi dægrin. Birgitta er til vitnis um það ófremdarástand.

–Og allir lúserar landsins voru, réttilega, mættir til að fella ekki sérstaklega mikinn kóng sem lét ömurleg ummæli falla í beinni útsendingu af fótboltaleik. Skoðanabræður hafa skoðun. Eins og himinninn er blár. Eins og Sigmundur Davíð tekur frægum enskum útlendingahatara fagnandi.

–Blað brotið í sögu Skoðanabræðra: ómennsk fylgja var fjórði gestur þessa þáttar, nefnilega hundurinn Bella. 

–Spurt að leikslokum: er eðlis- eða stigsmunur á rónanum sem sníkir vodkadreitil af auðmönnum á B5 og þeim sem hefur valið að hafna áfengi og taka Íslamstrú?

–Safinn er alltumlykjandi og hann er sem endranær á vegum Útvarps 101.

...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SkoðanabræðurBy Bergþór Másson

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

35 ratings


More shows like Skoðanabræður

View all
Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

150 Listeners

Þarf alltaf að vera grín? by Þarf alltaf að vera grín?

Þarf alltaf að vera grín?

218 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

24 Listeners

FM957 by FM957

FM957

28 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

91 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

26 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

13 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

71 Listeners

Teboðið by Birta Líf og Sunneva Einars

Teboðið

32 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

31 Listeners

Þungavigtin by Tal

Þungavigtin

23 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

21 Listeners

Ólafssynir í Undralandi by Útvarp 101

Ólafssynir í Undralandi

11 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

34 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

9 Listeners