Af hverju Ísland?

Af hverju Ísland?

Download on the App Store

Af hverju Ísland? episodes

  • Af hverju Ísland? - Þáttur 19 - Jórunn
    I dag hittum við Jórunni Einarsdóttur á zoom og þar var spurningin Af hverju ekki Ísland? þar sem hún er innflytjandi í Danmörku. Hún flutti ásamt fjölskyldunni til Kaupmannahafnar árið 2015 þar sem hún fór í nám. Þau búa þar enn og hún ræðir við okkur um áskoranir sem þau tókust á við þegar þau fluttu til nýs lands. Jórunn rekur nú fyrirtækið Katla - kennsla og ráðgjöf.
    1 hr 1 min
  • Af hverju Ísland? - Þáttur 18 - Tina
    Tina Merethe er viðmælandi dagsins. Hún er af dönsk-grænlenskum uppruna en hefur búið á Íslandi í mörg ár. Hennar fyrstu kynni af Íslandi voru þegar hún var fimm ára þegar pabbi hennar var við störf hér í Eyjum árið 1971. Hún flakkaði milli Danmerkur, Grænlands og Íslands þar til hún settist alfarið að í Vestmannaeyjum þar sem hún starfar sem hjúkrunarfræðingur.
    40 min
  • Af hverju Ísland? - Þáttur 17 - Monika
    Monika Katarzyna flutti til Íslands frá Póllandi árið 1995. Ævintýramennska kom henni til Íslands og ætlaði hún sér að vinna og vera á landinu í 6 mánuði. Síðan eru liðin mörg ár og Monika er hér enn, búin að eignast fjölskyldu, mennta sig og búa sér líf fjarri heimahögunum.
    1 hr 1 min
  • Af hverju Ísland? - Þáttur 15 - Jasmina
    Jasmina er frá Bosníu. Magnað viðtal um stelpu sem upplifði stríð, einelti og heimilisleysi. Jasmina vinnur hjá Reykjavíkurborg í fjölmenningarmálum og frásögnin hennar um lífið hennar og allt sem fylgdi erfiðum tímum er mögnuð. 
    1 hr 13 min
  • Af hverju Ísland? - Þáttur 14 - Madzia
    Madzia flutti til Ísland frá Póllandi á leikskólaaldri, fór aftur til Póllands og kom svo aftur. Hún segir frá sinni reynslu sem barn. Madzia stundaði nám í Grunnskóla Vestmannaeyja og er núna í Framhaldsskólanum í Vestmannaeyjum á vélstjórabraut. 
    47 min
  • Af hverju Ísland? - Þáttur 12 - Evelyn
    Evelyn kemur frá Sviss, hefur búið í Reykjavík, á Flúðum og í Vestmannaeyjum. Evelyn starfar sem kennari og er heilluð af Írlandi en kom til Íslands í skiptinám. Hún er klárlega tungumálamanneskja og hefur skemmtilega sögu að segja. 
    57 min

About Af hverju Ísland?

From the publisher's feed

https://www.facebook.com/afhverjuisland/?ref=page_internal