Ágætis byrjun - þættir úr menningarsögu fullveldisins Íslands
Umsjón: Guðni Tómasson.
6. þáttur. 1968-1977
Almennt:
Í útvarpsþáttunum Ágætis byrjun ferðast hlustendur í gegnum síðustu hundrað ár af listsköpun landans. Í hverjum þætti verða tekin fyrir nokkur lykilverk úr helstu listgreinum, sem urðu til á hverjum áratug fyrir sig. Kunnáttufólk um menningarsögu þjóðarinnar segir frá þróun, formbyltingum og nýjungum og raddir listamanna úr safni Ríkisútvarpsins hljóma á ný. Umsjón hefur Guðni Tómasson.
Viðmælendur í þessum þætti:
Ástráður Eysteinsson, Magnús Þór Þorbergsson, Æsa Sigurjónsdóttir og Davíð Ólafsson.