
Sign up to save your podcasts
Or


Málshættir, trúarbrögð, pólitík, o.fl. Páskarnir eru tíminn þar sem maður borðar yfir sig af súkkulaði (Og rífst kannski smá við ættingja um stjórnmál og samfélagið). Halda samt allir eins upp á páskana? Og hvað þýða þessir djös...Ég meina, forvitnilegu málshættir eiginlega?
Rant - þátturinn mikli! Vonandi er hjartað ykkar fullt af hatri þegar þið smellið á þennan þátt. Það eru samt nokkrir pabba-brandarar til þess að mýkja stemmarann í byrjun.
Þessi tók skarpa U-beygju. Það eru mörg umræðuefni sem áhugavaldarnir brenna fyrir. Eftirhermur, hot takes, samfélagsleg vandamál o.fl. Ari reynir líka að koma inn nokkrum "æsispennandi" þjóðsögum en Anna reynir sitt allra besta til að villa hann af leiðum...
Það eru nú allir mismikið gáfaðir... Í þessum bráðfyndna þætti með Áhugavöldunum, kíkir Egill í smá heimsókn. Anna færir okkur svo rjúkandi, sjóðheitar Reddit sögur á diskinn. En hver er aðal þöngulhausinn í þessum þætti?
Í þessum þætti setur Anna á sig hugsunarhattinn. Ari gerir sitt besta til þess að henda Önnu úr öskunni í eldinn, með því að leggja fyrir ansi strembinn spurningaleik. Kannski fylgir smá rapp og beatbox líka...
Tímastimplar;
0:00 Yapperville
2:38 Rapp og beatbox
4:08 Áhugaverðar Staðreyndir
10:20 Svaðalega spurningakeppnin !
Settu á þig álhattinn og stilltu geiger-mælinn, því í dag tekur Anna fyrir furðulegar samsæriskenningar. Kannski ertu búin/n að heyra þennan þátt áður?..
Tímastimplar;
0:00 Spaug og yapperville
5:46 Áhugaverðar staðreyndir
12:45 Umræðuefni þáttarins
21:43 Steinar eru mjúkir
23:18 Fuglar eru ekki alvöru
27:20 Hvað er að gerast þegar við fáum deja vu?
29:50 Afhverju er sjórinn ekki rannsakaður?
33:00 Tissjú pappír
34:43 Krukkur og feðraveldið
37:05 “Hold” tónlist í símum
38:12 Jörðin hefur færst til?
39:49 Bob Ross er raðmorðingi
44:32 Það eru engin alvöru tré á jörðinni
47:47 Rúmdýnubúðir
50:22 Tískuvörur eru samfélagsleg tilraun
54:11 Speglar eru gátt
55:39 Lagatitlar
57:00 Monster drykkurinn er satanískur
58:26 Sam smith og Adele
59:55 Avril Lavigne
1:01:18 Söfn eru fake
1:02:40 Svampur Sveinsson
1:04:25 Auka samsæris getgátur
Í þessum fyrsta þætti okkar áhugavalda fáið þið létta kynningu á okkur og nokkrar áhugaverðar staðreyndir - Ari tekur svo fyrir mjög áhugaverðar sögulegar Reddit sögur - og ein svakaleg æskuminning sem þú vilt ekki missa af því að heyra, úff.
(p.s. Þetta er eini þátturinn með verri hljóðgæðum)
Tímastimplar;
0:00 kynning á okkur og hlaðvarpinu
4:55 disclaimer
5:40 áhugaverðar staðreyndir
11:46 umræðuefni þáttarins
18:44 ég reitti foreldra kærustu minnar til reiði, með því að þykjast ekki vita hvað kartafla væri
31:40 Hvernig losar maður sívalning úr m&m túpu fullri af smjöri og stöppuðum banana?
43:55 Konan mín grenjar út af bókstaflega öllu
57:26 hvaða manneskju myndir þú velja úr allri mannkynssögunni til þess að stunda kynlíf með?
1:00:04 mér býður við ykkur!
1:07:03 Kúkahnífur.
1:16:17 Svakaleg æskuminning
1:26:46 eftirspjall
From the publisher's feed
Sperrtu eyrun, því systkinin Anna og Ari eru mættust hingað með áhugaverðasta hlaðvarp Íslands lóðbeint til þín. Nýir þættir á þriðjudögum.