Árið er

Árið er 2002 - seinni hluti


Listen Later

Quarashi treður upp á tónleikum á hverjum degi og Jinx heillar amerísk ungmenni.
Bubbi vaknar við Gróttu með sól að morgni, Hera Hjartardóttir flýgur yfir hálfan hnöttinn og stelur senunni en Dikta borðar yfir sig af bleikum sjeik. Apparat Organ Quartett spilar rokk og ról í steríó, Emilíana Torrini leggur Gollum orð í munn og Santiago vekur bjartar vonir.
Búdrýgindi bera sigur úr býtum í Músíktilraunum, Einar Tönsberg útskrifast með Lorien í Englandi og Skárren ekkert breytist í SKE og syngur á japönsku. Í svörtum fötum fer sigurför um landið og spilar og syngur dag sem dimma nátt en Sign leitar að rauðu ljósi.
Rappbylgja skellur á landinu. Bæjarins bestu halda sig í klúbbnum, Móri segist vera atvinnukrimmi og XXX Rottweilerhundar skulda. Múm föndrar grasi vaxin göng, KK syngur í paradís og englar himins grétu í dag en ástin vex á trjánum hjá Valgeiri Guðjóns.
Árið er 2002
Seinni hluti tuttugasta þáttarins í útvarpsþáttaröðinni Árið er.... Íslensk dægurlagasaga í tali og tónum fer í loftið á Rás 2 klukkan 16.05 laugardaginn 28. september og verður endurfluttur sunnudagskvöldið 29. september kl. 22.05.
Meðal viðmælenda í þættinum þar sem haldið verður áfram að fjalla um íslenska tónlistarárið 2002, eru: Sölvi Blöndal, Emilíana Torrini, Bubbi Morthens, Hera Hjartardóttir, Haukur Heiðar Hauksson, Franz Gunnarsson, Ágúst Bent Sigbertsson, Erpur Eyvindarson, Kjartan Kjartansson, Einar Örn Jónsson, Guðmundur Steingrímsson, Frank Hall og Kristján Kristjánsson.
Umsjónarmaður er Gunnlaugur Jónsson og honum til aðstoðar eru Ásgeir Eyþórsson, Jónatan Garðarsson og Sigríður Thorlacius.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Árið erBy RÚV


More shows like Árið er

View all
Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

143 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

24 Listeners

Rauða borðið by Gunnar Smári Egilsson

Rauða borðið

2 Listeners

Þungavigtin by Tal

Þungavigtin

23 Listeners

Samstöðin by Samstöðin

Samstöðin

0 Listeners