Mikið hefur verið fjallað um mikla fjölgun umsókna um alþjóðlega vernd á Íslandi og jafnvel talað um að innviðir séu komnir að þolmörkum. Í þessum þætti er fjallað um viðkvæma stöðu fólks á flótta, ekki síst kvenna og barna, umsóknarferlið, réttinn til vinnu og hvað synjun um vernd felur í sér. Viðmælendur í þættinum eru Íris Björg Kristjánsdóttir, Kristín Völundardóttir, Stella Samúelsdóttir, Þorsteinn Gunnarsson og konur frá Bólivíu sem sóttu um alþjóðlega vernd á Íslandi.
Þáttaröðin Ásjá var framleidd af Rás 1.
Umsjón og dagskrárgerð: Guðrún Hálfdánardóttir.
Tæknimaður: Lydía Grétarsdóttir.