Mannlegi þátturinn

Ásta og yoga, Bergþóra Árnadóttir, Ásmundur um kvíðaröskun


Listen Later

Ásta Þórarinsdóttir var aðeins 11 ára þegar hún fór í sinn fyrsta yogatíma. Hún er hagfræðingur með master í fjármálafræði og var að vinna í Fjármálaeftirlitinu þegar hún ákvað að sameina áhuga sinn á rekstri og Yoga og í dag er hún Yogakennari og rekur eigin yogastöð. Við töluðum við Ástu í þættinum í dag.
Bergþóra Árnadóttir, tónlistarkona, söngvaskáld og ein af frumkvöðlum vísnatónlistar á Íslandi hefði orðið 76 ára í dag ef hún hefði lifað. Jónatan Garðarson kom til okkar í dag og fór með okkur yfir feril Bergþóru.
Við fjölluðum svo um félagskvíða þegar Ásmundur Gunnarsson, sérfræðingur í klínískri sálfræði hjá Kvíðameðferðarstöðinni, kom til okkar og fræddi okkur frekar um þessa kvíðaröskun. Ásmundur segir að 10-12% fólks glími við hamlandi félagskvíða en að aðeins helmingur þeirra leiti sér aðstoðar og þá oft fimmtán til tuttugu árum eftir að kvíðinn er orðinn að vandamáli. Ásmundur sagði okkur meira frá þessu í dag.
Tónlist í þættinum í dag:
Dóri kokkur / Pónik (Þorvaldur Halldórsson)
Groovin with Mr. Bloe / Mr. Bloe (Bo Gentry, Kenny Laguna & Paul Naumann)
Lífsbókin / Bergþóra Árnadóttir (Bergþóra Árnadóttir og texti Laufey Jakobsdóttir)
UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Mannlegi þátturinnBy RÚV

  • 4
  • 4
  • 4
  • 4
  • 4

4

4 ratings


More shows like Mannlegi þátturinn

View all
Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

77 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

30 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

7 Listeners