Augnablik í iðnaði

Augnablik í iðnaði

By IÐAN fræðslueturBusiness
Download on the App Store

Augnablik í iðnaði episodes

  • Hvernig nýtast giggarar iðnfyrirtækjum með Hörpu Magnúsdóttur framkvæmdastjóra Hoobla
    Harpa Magnúsdóttir framkvæmdastjóri Hoobla er hér í skemmtilegu og fræðandi spjalli um möguleika lítilla og meðalstórra iðnfyrirtækja að ráða til sín stjórnendur í tímabundið starf eða lágt starfshlutfall. Hún nefnir að studnum skapist álagspunktar í rekstri eða þörf fyrir tímabundna ráðningu og þá sé gott að geta leitað til þjónustu eins og Hoobla.
    43 min
  • Netöryggi og öryggismat með Sigurmundi P. Jónssyni ráðgjafa hjá Origo
    Það geta öll fyrirtæki orðið fyrir barðinu á tölvuþrjótum segir Sigurmundur Páll Jónsson ráðgjafi hjá Origo, líka iðnfyrirtæki. Hann fer hér yfir af hverju mikilvægt er að hafa tölvuöryggsimál á hreinu og kynnir til sögunnar öryggismat sem metur stöðu hvers fyrirtækis. Með því fæst yfirsýn yfir tölvuöryggi og hvar mögulegir öryggisbrestir liggja. Tölvuþrjótar eru nefnilega, að hans sögn, ekkert að hugsa um stærð eða svið fyrirtækisins heldur bara hvar auðveldast er að brjótast inn.
    30 min
  • Samtök íslenskra eimingarhúsa með Evu Maríu Sigurbjörnsdóttur formanni samtakanna
    Samtök íslenskra eimingarhúsa voru stofnuð til að standa vörð um íslenska áfengisframleiðslu. Eva María Sigurbjörnsdóttir líffræðingur er formaður samtakanna og er hún hér í einkar fræðandi spjalli um tilburð samtakanna, markmið þeirra og íslenska áfengisframleiðslu. Einnig er Eva María mjög fróð um sögu áfengisframleiðslu og neyslu Íslendinga í gengum árin. Skemmtilegt og líflegt spjall.
    35 min
  • Nýsköpun í málaraiðn - alþjóðaverkefni þrettán landa.
    Þau Rakel Steinvör Hallgrímsdóttir náms- og starfsráðgjafi, Ólafur Ástgeirsson, leiðtogi bygginga- og mannvirkjagreina og Ásgeir Valur Einarsson verkefnastjóri á bygginga- og mannvirkjasviði eru fulltrúar alþjóðaverkefnis um nýsköpun í málariðan. Að verkefninu koma 23 aðilar frá 13 löndum. Hér fjalla þau um verkefnið og þá möguleika sem koma út úr slíku samstarfi.
    18 min
  • Stafræn hæfni með Evu Karen Þórðardóttur framkvæmdastjóra Stafræna hæfniklasans
    Eva Karen Þórðardóttir, framkvæmdastjóri Stafræna hæfniklasans, er sannfærð um að stafrænar lausnir eigi erindi við fyrirtæki í iðnaði. Hún segir iðnaðinn mislangt á veg kominn í innleiðingu stafrænna lausna og bendir á að Stafræni hæfniklasinn bjóði iðnfyrirtækjum upp á að greina og koma auga á möguleika til innleiðingar, en einnig að greina stafræna hæfni starfsmanna.
    43 min
  • Nám í bíliðngreinum með þeim Ólafi og Hreini fagstjórum í Borgarholtsskóla
    Í þessum þætti ræðir Sigurður Svavar Indriðason leiðtogi bílgreina hjá Iðunni við þá félaga Hrein Á. Óskarsson og Ólaf G. Pétursson fagstjóra í bíliðngreinum við Borgarholtsskóla. Þeir hafa þurft að aðlaga sig gríðarlega að heftandi skipulagi síðustu ára og segja bíliðngreinarnar koma vel undan þeim tíma. Framundan séu spennandi tímar þar sem atvinnulifið og skólinn þurfa að taka heiðarlegt samtal um framtíðina. Þetta er skemmtilegt og fræðandi spjall þar sem þeir félagar tala af ástríðu um stöðuna og framtíðarhorfur í bíliðngreinum.
    51 min
  • Stjórnendur sem horfa inn á við ná árangri, með Thor Ólafssyni eiganda Strategic Leadership
    Thor Ólafsson er reynslumikill stjórnendaráðgjafi og stofnandi fyrirtækisins Strategic Leadership sem er með starfsemi víða um heim. Í þessu fróðlega viðtali kynnir Thor okkur fyrir hugmyndum sínum um stjórnun og mikilvægi þess að starfsmenn og stjórnendur geri sér grein fyrir eigin „egói“ og áhrifum þess. Thor er um þessar mundir að gefa út bókina Beyound Ego. The inner compass of counscious leadership. Bókin er aðgengileg á Amazon og dagana 12.-14. maí nk. verður hægt að sækja hana endurgjaldslaust í stafrænni útgáfu.
    42 min

About Augnablik í iðnaði

From the publisher's feed

Podcast by IÐAN fræðsluetur