Augnablik í iðnaði

Augnablik í iðnaði

By IÐAN fræðslueturBusiness
Download on the App Store

Augnablik í iðnaði episodes

  • Rafeldsneyti með Jóni Heiðari Ríkharðssyni, vélaverkfræðingi hjá EFLU
    Hér ræðir Sigurður Svavar Indriðason sviðstjóri bilgreinasviðs IÐUNNAR við Jón Heiðar Ríkharðsson vélaverkfræðingu um hvað rafeldsneyti er og hversu stóran þátt mun það eiga í orkuskiptum hér á landi. Umræðan hefur snúist mikið til um bíliðnaðinn og skiptin frá brunaheyfilsbílum yfir í rafbíla. En hvað með allar aðrar samgöngur og flutningsmáta og hver er framtíðin í þeim efnum?
    36 min
  • Raki og mygla í húsum með Sylgju Dögg Sigurjónsdóttur líffræðingi
    Í þessum þætti fjallar Sylgja Dögg Sigurjónsdóttir um raka og myglu í húsum. Sylgja hefur starfað við byggingariðnaðinn í hartnær 16 ár og vinnur nú sem ráðgjafi hjá Eflu verkfræðistofu ásmt því að kenna á námskeiðum hjá Iðunni. Sylgja er sérfræðingur í raka- og mygluskemmdum og þekkir það af eigin raun að búa í rakaskemmdu húsnæði. Sú lífsreynsla varð m.a. til þess að hún sérhæfði sig á þessum vettvangi að eigin sögn.
    24 min
  • Kjötiðn og landslið kjötiðnaðarmanna með Jóhanni Frey Sigurbjarnasyni landsliðsmanni
    Hér ræðir Ólafur Jónsson, sviðstjóri Matvæla- og veitingasviðs IÐUNNAR, við Jóhann Frey Sigurbjarnason kjötiðnaðarmann, en hann á sæti í landsliði kjötiðnaðarmanna. Jóhann er bjartsýnn á gott gengi landsliðsins og telur iðngreinina vera í mikilli sókn. Hann leggur áherslu á samvinnu matreiðslumanna og kjötiðnaðarmanna og segir hana geta aukið vöruúrval þar sem viðskiptavinir eru alltaf að leita að spennandi nýjungum. Skemmtilegt og fróðlegt spjall um möguleikana í námi, starfi og keppnum.
    20 min
  • Allt um sveinspróf með Svani K. Grjetarssyni formanni sveinsprófsnefndar í húsasmíði
    Svanur Karl Grjetarsson framkvæmdastjóri Mótx er hér í fróðlegu spjalli við Ólaf Ástgeirsson sviðstjóra bygginga- og mannvirkjasviðs IÐUNNAR um sveinspróf. Svanur Karl er formaður sveinsprófsnefndar í húsasmíði og segir hér frá mikilvægum þáttum er varða prófið, undirbúning, framkvæmd og hvað hafa beri í huga þegar kemur að sveinsprófi. Þeir fara líka yfir hvaða möguleika nemi hefur ef tilskildum árangri í prófinu er ekki náð. Fróðlegt spjall í alla staði.
    27 min
  • Prentbransinn og fleiri spennandi verkefni með Birgi Jónssyni forstjóra Play
    Birgir Jónsson forstjóri Play er prentari í grunninn. Hann sótti sér framhaldsmenntun í prentrekstrarfræði og telur að sú menntun hafi nýst sér mjög vel í þeim störfum sem hann hefur tekið sér fyrir hendi. „Ég er pönkari og segi því það sem þarf" segir Birgir í viðtalinu en hann hefur tekið að sér stór og flókin verkefni sem oft hafa reynt á. Birgir er einnig með skoðanir á prentun og prentiðnaðinum á Íslandi og úr þessu varð afar skemmtilegt spjall við Grím Kolbeinsson stjórnanda þáttarins.
    31 min
  • Evrópukeppni Bocuse d‘Or með Sigurjóni B. Geirssyni matreiðslumanni
    Hér er rætt við Sigurjón Braga Geirsson matreiðslumann, en hann verður fulltrúi Íslands í Evrópukeppni Bocuse d‘Or í Búdapest núna í mars. Tíu efstu sætin í Evrópukeppninni ávinna sér rétt til að keppa í aðalkeppninni í Lyon árið 2023. Sigurjón býr yfir gríðarlegri reynslu sem fulltrúi í kokkalandsliði Íslands, keppandi og þjálfari. Hér er á ferðinni fróðlegt og skemmtilegt spjall um leiðina til Lyon.
    22 min

About Augnablik í iðnaði

From the publisher's feed

Podcast by IÐAN fræðsluetur