Besta platan

Besta platan

Download on the App Store

All Besta platan episodes

  • #0261 Tool – Ænima

    Gáfumannaþungarokk Tool náði hæstu hæðum tiltölulega fljótt eða á annarri plötunni, Ænima (1996). Um það má hins vegar deila og var slíkt gert í tólf tíma þætti, gerðum til að endurspegla lengd laga Tool og tímann sem sveitin tekur í það að gera plötur. Djók.

    1 hr 19 min
  • #0259 Frimínútur – Gestaglanninn
    Við opnuðum fyrir neyðarlínu Bestu plötunnar og fengum myndarlegan haug af vafasömum tónlistarskoðunum frá hlustendum. Við reyndum að dæma engan, en sumt er reyndar svo yfirmáta heimskulegt að það dæmir sig sjálft.
    1 hr 13 min
  • #0258 Madness – One Step Beyond

    Besta plata æringjanna í Madness er þeirra fyrsta, One Step Beyond (1979). Samt er það ekki alveg svo einfalt því að snemma kom í ljós að grín er ekkert glens …

    1 hr 17 min
  • #0257 Gojira – From Mars to Sirius

    Gojira eru nefstórir, croissant-étandi flagarar, sem fengu leið á því að traðka á vínberjum og stofnuðu þess í stað grjótharða þungarokkshljómsveit sem nýtur virðingar um alla veröld. Þriðja plata sveitarinnar, From Mars to Sirius frá 2005, er sú besta.

    1 hr 22 min
  • #0256 Frímínútur – Vídeó

    Gullöld tónlistarmyndbandanna hófst í upphafi 9. áratugar síðustu aldar og sér vart fyrir endann á henni, nærri hálfri öld síðar. Þríeykið knáa rýnir í þetta stórmerkilega fyrirbæri og að sjálfsögðu var settur saman topplisti.

    59 min
  • #0254 Kim Larsen – 231045-0637

    Kim Larsen er vinsælasti tónlistarmaður Danmerkur frá upphafi, eða eins og Danir segja: „Hann er spilaður þegar þú fæðist, þegar þú giftir þig og þegar þú deyrð“. Platan 231045-0637 frá árinu 1979, eða „kennitöluplatan“ eins og hún er oft kölluð, er hans besta að mati Hauks, en hvað segja meðstjórnendur?

    1 hr 22 min