Bíó Tvíó

Bíó Tvíó

By HeimildinTV & Film
Download on the App Store

Bíó Tvíó episodes

  • #8 Myrkrahöfðinginn
    Hver er raunverulega Myrkrahöfðinginn? Í þætti vikunnar fjallar Bíó Tvíó um kvikmynd Hrafns Gunnlaugssonar frá 1999 sem byggir á Píslarsögu séra Jóns Magnússonar. Hversu oft verður Hilmir Snær harður sem grjót? Hvernig týpa er Hrafn Gunnlaugsson eiginlega? Og ef galdrar eru til í alvöru, hver var það sem lagði bölvun á stjórnendur Bíó Tvíó? Allt þetta – plús réttindabarátta fólks með talgalla – í Bíó Tvíó!
    0 min
  • #7 Punktur punktur komma strik
    Þessa vikuna fjallar Bíó Tvíó um kvikmyndina Punktur punktur komma strik frá árinu 1981. Svipmyndir úr lífi hins reykvíska Andra, byggðar á skáldsögu Péturs Gunnarssonar. Er hægt að gera mynd án söguþráðar? Fær Andri á broddinn (AKA skinnflipann) í myndinni? Og hvað finnst þúsundþjalasmiðunum Andreu og Steindóri um Westworld? Allt þetta og meira í Bíó Tvíó!
    0 min
  • #6 Fúsi
    Bíó Tvíó ferðast alla leiðina til Íslands til að fjalla um Fúsa, kvikmynd Dags Kára frá 2015. Hvernig getur ein íslensk kvikmynd um þroskasögu íslensks karlmanns toppað hinar? Hverjar er afleiðingar þess að borða duft alla daga? Erum við öll föst í sýndarveruleika? Stóru spurningarnar, auk umfjöllunar um íslenskar kvikmyndir, allt þetta og meira í Bíó Tvíó.
    0 min

About Bíó Tvíó

From the publisher's feed

Bíó Tvíó er vikulegt hlaðvarp um íslenskar kvikmyndir. Andrea Björk og Steindór Grétar hafa lagt upp með að horfa á hverja einustu íslensku kvikmynd og ræða um þær af takmarkaðri þekkingu en töluverði…