
Sign up to save your podcasts
Or


Við ræðum kynlíf í dægurmenningu, sérstaklega í bíómyndum og sjónvarpi, í gegn um tíðina. Einnig kíkjum við á Horny Twitter og fáum hjálp graðra tvítverja við að nefna eftirminnilegar kynlífssenur. Mikið er flissað þar sem þáttarstjórnendur virðast ekki alveg nógu þroskaðar til að tækla þetta málefni af yfirvegun. Let's get it on!
TW: Nauðgun og kynferðisofbeldi í kvikmyndum
Við höldum áfram að skoða sifjaspell. Nú snúum við okkur að sögu sifjaspella í dægurmenningu aftur til 16. aldar og veltum auk þess fyrir okkur Human Centipede. Af því að .. oj. Eftir þennan þátt getum við svo sáttar snúið okkur að öðru. Takk fyrir.
Sifjaspell eru víðar en við héldum og hafa laumað náskyldum krumlum sínum í ýmsa anga dægurmenningar. Frá Game of Thrones til Hornauga Ásdísar Höllu, yfir í biblíuna og auðvitað í kláminu, bæði rituðu og leiknu, má finna sifjaspell. Við skoðum uppruna þessara vinsælda þeirra, umdeildu kenninguna genahrifningu og flissum svolítið.
Þátturinn sem tvær af þremur umsjónarkonum poddsins kafna næstum á sælgæti. Og talandi um sælgæti, í þessari viku fjöllum við um strákasveitir. Við skoðum hvað þær eru, hver fann þær upp og hvers vegna þær eru svona vinsælar. Er það uppbygging sveitanna sem sker úr um hver er strákasveit eða eru það aðdáendurnir? Hvers vegna er almennt litið niður á áhugamál unglingsstúlkna og hvers vegna köfnum við á vegan nammi?
Kvikmyndaklúbbur Bergrúnar tekur fyrir myndina Promising Young Woman. Við viljum vara við því að myndin fjallar um kynferðisofbeldi og getur umræðan verið triggerandi. Einnig er góð spurning hvers vegna báðar myndirnar sem við höfum tekið fyrir í podcastinu hingað til innihalda Adam Brody, ofbeldi og hefnd. Kannski erum við með þema?
Greinar:
https://www.vulture.com/2021/02/how-promising-young-womans-soundtrack-came-together.html
https://people.com/movies/carey-mulligan-explains-why-negative-review-stuck-with-her/
https://collider.com/promising-young-woman-emerald-fennell-interview-ending-spoilers/
https://www.nytimes.com/2021/04/01/podcasts/still-processing-promising-young-women-oscars.html
https://www.latimes.com/entertainment-arts/awards/story/2021-04-12/promising-young-woman
https://www.thetimes.co.uk/article/promising-young-woman-review-a-masterly-tale-of-vengeance-vxfvxp5g7
Marilyn Monroe. Kim Kardashian. Píkan hans Gustave Courbet. Nektarsjálfan, samfélagsmiðlar, valdefling, gægjuhneigð og glápþörf. Við drepum víða niður fæti í þessum þætti sem fjallar um sjálfið á tímum samfélagsmiðla, áhrifavalda og markaðssetninga. Er instagramsjálfsmyndin list, er hún tekin á forsendum viðfangsins, viðheldur hún gömlum fegurðarstöðlum eða er hún tæki til valdeflingar? Við höfum kannski ekki lokasvarið en við höfum heilmargar spurningar.
Listakonan sem Sjöfn gat ekki munað nafnið á var Catherine Opie. Mælum með.
MA-ritgerð Díönu: https://skemman.is/handle/1946/29959
Greinar:
https://www.fastcompany.com/28905/brand-called-you
https://www.ruv.is/frett/2021/04/19/er-nektarsjalfan-list
https://www.theguardian.com/news/2017/aug/18/neoliberalism-the-idea-that-changed-the-world
https://theconversation.com/how-neoliberalism-colonised-feminism-and-what-you-can-do-about-it-94856
TW. átraskanir.
Í þættinum ræðum við birtingarmyndir feitra (kvenna) í dægurmenningu. Það kannast flest ef ekki öll við neikvæðar hugsanir um líkama sinn, oftar en ekki vegna þess að hann er „of mikið“ eða „ekki nógu“. Við ræðum þráhyggju samfélagsins gagnvart þyngd, kerfisbundna mismunun, spjöllum um þekktar persónur sem eru kóðaðar neikvæðar vegna holdafars og og eigin reynslu af megrunarmenningu. Mælum með Samtökum um líkamsvirðingu og að hætta að fylgja bara grönnu fólki á instagram. Ef þig langar að senda okkur hugleiðingu eða athugasemd má hafa samband á instagram @birtingarmyndir eða í emaili [email protected]
Meðmæli:
Þættir:
Shrill
My Mad Fat Diary
Myndir:
Dumplin
Brittany Runs a Marathon
Hlaðvörp:
Maintenance Phase
Bækur:
Hunger, Roxane Gay
Landwhale, Jes Baker
Greinar:
https://highline.huffingtonpost.com/articles/en/everything-you-know-about-obesity-is-wrong/
https://gay.medium.com/the-body-that-understands-what-fullness-is-f2e40c40cd75
Hverjar eru birtingarmyndir fatlaðra í menningunni okkar? Af hverju eru aðeins 3.1% leikara í sjónvarpi fatlaðir? Hvers vegna endaði Quasimodo ekki með Esmeröldu í lokin? Einnig -er ekki kominn tími á fatlaðan karakter sem er horny? Við spjöllum um kvikmyndirnar Forrest Gump, Me Beore You, Million Dollar Baby, Hringjarann frá Notre Dame, Shape of Water og A Quiet Place, Peanut Butter Falcon og X-Men og þættina Sex Education, Crip Camp, Master of None og bókina Sitting Pretty sem er einmitt bók mánaðarins í bókaklúbbi Flóru þann 23. maí næstkomandi.
TW: Minnumst á kynferðislegt ofbeldi og ableisma
https://www.aruma.com.au/about-us/blog/run-forest-run-disability-stereotypes-in-the-media/
Velkomin í kvikmyndaklúbb Bergrúnar, Bergrún's Movie Night. Við ræðum og greinum hina mögnuðu og misskildu költmynd Jennifer's Body frá árinu 2009. Þú þarft ekki að hafa séð myndina til að njóta spjallsins, en við mælum þó með að kíkja á hana. Dýfðu þér með okkur í heim kvenhaturs, hryllingsmynda og misskildra snillinga.
TW: Fyrir alls kyns ofbeldi gegn konum
Við vitnum meðal annars í greinarnar:
https://cinemedia.media/feminism-jennifers-body/
https://www.vox.com/culture/2018/10/31/18037996/jennifers-body-flop-cult-classic-feminist-horror
https://www.buzzfeednews.com/article/louispeitzman/jennifers-body-diablo-cody-karyn-kusama-feminist-horror
Hverjar eru þessar lesbíur? Eða hinsegin konur almennt? Við dýfum okkur í skilgreiningar, komum allar út úr skápnum og skoðum birtingarmyndir kvenna sem elska konur í kvikmyndasögunni.
From the publisher's feed