Birtingarmyndir

Birtingarmyndir

By Bergrún Andradóttir, Díana Sjöfn Jóhannsdóttir, Sjöfn HauksdóttirSociety & Culture
Download on the App Store

Birtingarmyndir episodes

  • Geimverur

    Geimvera hvað? Við fjöllum um geimverumyndirnar Alien (1979), Signs (2002) og Arrival (2016), District 9, Bird Box, A Quiet Place, The Thing (1982) og War of the Worlds. Díana deilir með okkur martröð sem ásækir hana endurtekið og Sjöfn rifjar upp söguþráð Avatar (2009) og af hverju hún er alveg eins og ákveðin Disney mynd. Bergrún vill biðja aðdáendur Alien afsökunar fyrir að slátra myndinni í endursögn og reiða sig of mikið á Wikipedia um þemu og söguþráð.

    TW: Minnst á nauðgun á mín. 16

    1 min
  • Nornir

    Er þetta gömul kona sem á kött og huggulegan grasagarð, eða er þetta NORN? Við ræðum nornir almennt, sögu þeirra, kíkjum á hið kynjakvótajafnandi íslenska nornafár og veltum okkur upp úr birtingarmyndum norna í kvikmyndinni The Craft. Galdrið með!

    Vísindavefurinn: Hvað voru margar nornabrennur á Íslandi, hvenær hættu þær og hverjar voru brenndar?

    Vísindavefurinn: Af hverju voru nornir brenndar á miðöldum?

    TW. Stutt minnst á nauðgun á 20. mín, 45. mín og 108. mín.

    1 hr 25 min
  • Barneignir

    Hvaða áhrif hafa birtingarmyndir foreldra í poppkúltúr og á samfélagsmiðlum á það hvernig við hugsum um hlutverkið? Mommy-bloggers, instamoms, working moms. Fullkomin outfit, fullkomnar veislur… fyrir hvern er þetta? Hvaða áhrif hefur það á okkur og hvaða áhrif hefur það á börnin?

    https://www.buzzfeednews.com/article/stephaniemcneal/myka-stauffer-huxley-announcement

    https://www.instagram.com/thebirdspapaya/?hl=en

    https://podcasts.apple.com/gb/podcast/under-the-influence-with-jo-piazza/id1544171101

    https://www.today.com/parents/under-influence-podcast-unveils-mom-influencers-world-t207937

    1 hr 8 min
  • Asía I

    Hvað er Asía? Hver er asískur? Og hvernig birtast okkur staðalmyndir fólks frá þessari gríðarstóru heimsálfu? Við ræðum margbreytileika Asíu, skaðlegar staðalmyndir, hugmyndir vestursins og ris kynþáttafordóma gegn fólki af asískum uppruna á Covid tímum.

    Ýtarefni:

    https://www.asiannotasianpod.com

    https://www.earwolf.com/show/yo-is-this-racist/

    https://flora-utgafa.is/flaedi/rasiskar-stadalmyndir-drepa-stopasianhate/

    https://www.alliant.edu/blog/bamboo-ceiling-asian-americans-and-myth-model-minority

    1 hr 9 min
  • Karlmennska II

    Ó karlmennska, af hverju ertu stundum svona skaðleg? Við skoðum Incel-menningu, gervi-femínista, og margslungnar birtingarmyndir skaðlegrar karlmennsku í dægurmenningu.

    1 hr 1 min
  • Einhverfa

    Grannur og spengilegur hvítur, karlkyns snillingur gengur inn í bíómynd. Gæti hann verið ... einhverfur? Við ræðum birtingarmyndir einhverfu í dægurmenningu, mýtur og staðalmyndir.

    1 hr 10 min
  • Skvísan

    Við köfum ofan í birtingarmyndir skvísunnar í dægurmenningu. Skvísið ykkur í gang.

    1 hr 14 min

About Birtingarmyndir

From the publisher's feed

Birtingarmyndir alls kyns fyrirbæra í dægurmenningu.