Sign up to save your podcastsEmail addressPasswordRegisterOrContinue with GoogleAlready have an account? Log in here.
FAQs about Bókaspjallið | Borgarbókasafnið:How many episodes does Bókaspjallið | Borgarbókasafnið have?The podcast currently has 43 episodes available.
October 30, 2020Hrekkjavökuganga Borgarbókasafnsins 2020Aðstæður í samfélaginu gera að verkum að ekki er hægt að fagna hrekkjavökunni með hefðbundnum hætti í ár. Borgarbókasafnið býður fjölskyldum því upp á hrekkjavökugaman í formi rafrænnar bókmenntagöngu sem hægt er að fara saman, hvar og hvenær sem er. Sunna Dís Másdóttir les úr skuggalegum, draugalegum, já og stundum hreint út sagt hryllilegum bókum íslenskra barna- og unglingabókahöfunda.Lesið er úr eftirfarandi bókum: Bölvun Múmíunnar eftir Ármann JakobssonDrauga-Dísa eftir Gunnar Theodór EggertssonDúkka eftir Gerði KristnýjuEitthvað illt á leiðinni er, ritstjóri Markús Már Efraím. Höfundar sögunnar: Ronja Björk Bjarnadóttir og Matthea Júlíusdóttir Skóladraugurinn eftir Ingu Mekkín Beck Vetrarfrí eftir Hildi Knútsdóttur...more38minPlay
November 05, 2019SkrimslavarpidÍ tilefni Hrekkjavöku hertu starfsmenn Borgarbókasafnsins upp hugann og ræddu helstu skrímsli hryllingsbókmenntar, allt frá Dracula og skrímsli Frankensteins til Pennywise Stephens Kings - með viðkomu hjá Greppikló og Litla og stóra skrímslinu....more23minPlay
October 25, 2019HryllingshlaðvarpiðBjörn Unnar, Jóhannes, Maríanna Clara og Vala eru að komast í Hrekkjavökugírinn og spjalla um hrylling í ýmsu formi....more23minPlay
October 04, 2019Bókstaflegir titlar!Maríanna Clara og Björn Unnar rýna í „bókstaflega titla" - þar sem fólk lýsir bók án þess að nota nafnið - og giska á hvaða bók er talað um. Spyrill þáttarins er Esther....more19minPlay
September 27, 2019Byggt á bókMaríanna Clara, Björn Unnar, Ólöf og Ingi spjalla um myndir og þætti sem byggja á skáldsögum....more28minPlay
September 19, 2019Kvikmyndatónlistarspurningaleikurinn!Í tilefni þess að Hildur Guðnadóttir vann Emmy verðlaunin fyrir tónlist sína í þáttunum Chernobyl tók Esther þá Inga og Jóhannes í örstuttan kvikmyndatónlistarspurningaleik. Esther spilaði stutt brot úr hinum ýmsu kvikmynda- og þáttatónlistarverkum og Ingi og Jóhannes giskuðu á höfund og þátt/kvikmynd....more19minPlay
September 13, 2019Skólabækur og fingrasetningJóhannes Árnason, Maríanna Clara Lúthersdóttir og Vala Björg Valsdóttir ræða um bækurnar sem framhaldsskólanemum er gert að lesa. Leslistarnir eru að einhverju leyti fjölbreyttir, eins og reynsla þáttastjórnenda. Á meðan þau yngri gerðu stuttmyndir byggðar á Galdra-Lofti lærði fulltrúi eldri kynslóða á ritvél....more20minPlay
September 07, 2019Hvað lásum við í sumar?Guðrún Baldvinsdóttir, Maríanna Clara Lúthersdóttir og Vala Björg Valsdóttir hittust í Kompunni og ræddu hvaða bækur þær lásu í sumarfríinu, en einnig um rósaræktun, vatnsræktun og sjálfsrækt(un)....more20minPlay
June 22, 2019Bækur að kvikmyndumIngi, Björn Unnar og Jóhannes skeggræða (að Inga utantöldum) hvaða bækur væri gaman að gera að bíómyndum!...more25minPlay
June 15, 2019Giskaðu á bókinaIngi spurði Guttorm og Esther spjörunum úr um daginn þegar Stjörnustríðið var tekið fyrir í hlaðvarpinu. Í þættinum í dag nær Esther fram hefndum þegar hún lætur Inga og Björn Unnar giska á bókatitla út frá aðeins sex orðum!...more15minPlay
FAQs about Bókaspjallið | Borgarbókasafnið:How many episodes does Bókaspjallið | Borgarbókasafnið have?The podcast currently has 43 episodes available.