Sign up to save your podcastsEmail addressPasswordRegisterOrContinue with GoogleAlready have an account? Log in here.
FAQs about Bókaspjallið | Borgarbókasafnið:How many episodes does Bókaspjallið | Borgarbókasafnið have?The podcast currently has 43 episodes available.
June 08, 2019Sumarlestrarbækur Sunnu!Hvað myndi Sylvía Nótt, Ali G eða Amy Schumer lesa í sumar? Hvað myndum við lesa í sumar? Hvað munt þú lesa í sumar? Getur þú yfir höfuð lesið yfir sumarið?Við svörum (næstum því) öllum þessum spurningum í nýjasta hlaðvarpsþætti Borgarbókasafnsins!...more23minPlay
May 31, 2019Ævisögulegir titlar Guttorms994 titlar eru ræddir í þaula í nýjasta hlaðvarpsþætti Borgarbókasafnsins. Sunna Dís, Guttormur og Guðrún ræða gamlan föstudagsfésbókarpóst þar sem fólk gat fengið titilinn á óútgefna ævisögu sína út frá upphafstöfum nafn síns!...more17minPlay
May 17, 2019Skylduáhorf í skóla lífsinsHvað eiga Amélie de Poulain, Trainspotting og Michael Mann sameiginlegt? Sunna, Jóhannes og Björn Unnar spjalla um svörin sem bárust á Facebook þegar við spurðum fylgjendur okkar hvaða kvikmynd ætti að vera skylduáhorf fyrir alla. Þráðinn má finna hér: http://bit.do/eSDvb...more19minPlay
May 10, 2019Síðbúinn fermingagjafaþátturBjörn, Jóhannes og Guðrún ræða hvaða bækur má gefa fermingarbörnum og komast að misgáfulegum niðurstöðum!...more16minPlay
May 03, 2019Alþjóðlegi Star Wars dagurinn - May(hew) the fourth be with you!Flest erum við nú farin að tengja 4. maí við einn frægasta vísindaskáldskap heims, Star Wars. Í tilefni af þessum merkisdegi ákváðu Esther, Guttormur og Ingi að setjast niður í Kompuna og spjalla um Star Wars í bland við föstudagsstuðið þar sem fylgendur okkur á Facebook voru spurðir út í þær vísindaskáldsögubækur og -bíómyndir sem væru í uppáhaldi hjá þeim. Þátturinn var tekinn upp 2. maí en daginn eftir bárust fregnir af andláti leikarans Peter Mayhew sem var hvað helst þekktur fyrir túlkun sína á Chewbacca, eina ástsælustu persónu kvikmyndaseríunnar. Því var tekinn upp formáli á þáttinn og hann tileinkaður Mayhew....more31minPlay
April 27, 2019Bókmenntahátíð í ReykjavíkSunna Dís og Guðrún Baldvins rétt fara yfir dagskrá Bókmenntahátíðar í Reykjavík í einum lengsta hlaðvarpsþætti Borgarbókasafnsins!...more31minPlay
April 16, 2019Hefðalaust páskafríVið spurðum Fésbókarvini hver leiðarendinn væri ef þeim áskotnaðist flugmiði um páskana til bókarinnar sem þeir væru að lesa þessa stundina. Áfangastaðirnir voru af misjöfnum toga, sumir voru ansi heppnir en aðrir síður. Þau Sunna Dís, Guðrún Baldvins og Jóhannes á Borgarbókasafninu ræddu þessi ímynduðu ferðalög og svo að sjálfsögðu hvað yrði lesið og horft á í páskafríinu....more21minPlay
April 12, 2019Atvinnutækifæri í barnabókumFöstudagsstuðsumræðan að þessu sinni er afar barnabókavæn í tilefni af Barnamenningarhátíð. Fyrst var spurt hvaða barnabók væri í uppáhaldi hjá fylgjendum Borgarbókasafnsins á Facebook og því næst áttu svarendur að velja sér starfstitil í bókinni. Skemmtilegar umræður spunnust út frá stuðinu svo þær Guðrún Baldvins, Þorbjörg Karls og Esther Þorvalds ræddu og grínuðust hressilega í þessum dulitla hlaðvarpsþætti....more15minPlay
April 05, 2019Eftirminnilegasta setningin!Esther, Tobba og Droplaug ræða eftirminnilegar setningar úr íslenskum bókum og orðagrín á splunkunýjum pokum Borgarbókasafnsins í nýjasta hlaðvarpsþætti Borgarbókasafnsins!...more13minPlay
March 28, 2019Bækur sem fá tárin til að rennaÍ nýjasta hlaðvarpsþætti Borgarbókasafnsins áttu Esther, Guðrún og Ingi saman sorgarstund í Kompunni þegar þau ræddu föstudagsfjörs spurninguna; Hvaða bækur fá tárin til að renna?...more20minPlay
FAQs about Bókaspjallið | Borgarbókasafnið:How many episodes does Bókaspjallið | Borgarbókasafnið have?The podcast currently has 43 episodes available.