
Sign up to save your podcasts
Or


BLE bræður í miklu stuði þennan fimmtudaginn
Boltinn Lýgur Ekki fagnar eins árs afmæli á X977 með fjölbreyttum þætti. -Heiðar Snær mætti í heimsókn og fór yfir ferð Þórsara til Kosovo og Þórsliðið í vetur. Véfréttin fór svo yfir frægðarför sína og síns liðs á Pollamót Þórs á Akureyri um síðustu helgi. NBA deildin var á sínum stað þar sem var farið yfir mest spennandi leikmanninn sem hefur komið inn í deildina síðustu 19 árin og hnefasamloku frá Draymond Green. Álftanes fer vel af stað í BLE deildinni en Skallagrímur ekki. Lokuðum þessu á Subwaydeild karla sem er rétt í þann mund að hefjast. Spáðum í spilin alla leikina og bjuggum til BLEðil.
Stóra BLE spáin (sem er töluvert faglegri en spá formanna og þjálfara) fyrir Subway deild karla. Véfréttinn og sá Raunverulegi fengu þann Slæma í Fiskabúrið og tekinn var 360 gráðu snúningur á tímabilinu sem er framundan. Sleggjudómar, mönnum hent fyrir rútuna á meðan aðrir voru hafðir upp til skýjana. Hver er lykilmaður? Hver er búðingur? Hver er 12. maðurinn? Þetta og margt fleira í þessum þætti.
Strákarnir í BLE í fantaformi þennan fimmtudaginn. Ólöf Helga Pálsdóttir Woods mætti til þeirra og fór yfir kvennaboltann og sparaði ekki stóru orðin. Þar á eftir fóru þeir bræður yfir neðri deildirnar eins og þær leggja sig og Tómas Steindórsson, sérfræðingur Stöðvar 2 í 1. deild karla opinberaði spána fyrir 1. deildina.
Véfréttin var á tökkunum að þessu sinni því Sá Raunverulegi var fjarri góðu gamni.
Strákarnir hressu, BLE bræðurnir Véfréttinn og Tommi Steindórs, eru mættir aftur. Svokallað soft opening, farið yfir Eurobasket, NBA og svo hverjir eru komnir og farnir í Subway deildinni.
BLE bræður mættu í síðasta sinn í bili í Fiskabúrið til þess að ræða körfuboltann. NBA finals, streetballmót Húrra, íslenski boltinn, orðið á götunni, nýr formaður KR og fleira.
BLE bræður mættir aftur eftir einstakt messufall í síðustu viku.
BLE bræður voru glaðir þennan fimmtudaginn, enda kominn júní. Fjölluðu um Streetball mót X977 sem verður á Klambratúni 11. júní (miðar á tix.is) áður en þeir fóru yfir það sem skiptir málí, úrslitin í NBA.
Boltinn Lýgur Ekki voru að sjálfsögðu í beinni á uppstigningardag. Byrjuðu á því að fara yfir NBA áður en þeir hringdu í Finn Freyr, þjálfara Íslandsmeistara Vals og fóru yfir vegferðina að titlinum. Síðan var farið í verðlaunaafhendingu fyrir úrslitakeppnina og smá slúðrað að lokin.
From the publisher's feed

141 Listeners

22 Listeners

20 Listeners

2 Listeners