Boltinn lýgur ekki

Boltinn lýgur ekki

Download on the App Store

Boltinn lýgur ekki episodes

  • Boltinn Lýgur Ekki - Playoffs manía

    Allt er á suðupunkti. Playoffs í NBA, Finals í Subway deildinni. BLE bræður voru á útopnu í tvo tíma þennan fimmtudaginn. NBA krufning, slúður, Valur vs Tindastóll krufning, sá Slæmi á línunni, fullt fleira. Tommi þurfti að drífa sig á Ölver og hafði þar af leiðandi ekki tíma í að klippa þennan þátt. Vona að þið sýnið þessu hliðarspori skilning.



    1 hr 54 min
  • Boltinn Lýgur Ekki - Hilmar í Hauka, Hápunktinum náð og úrslitin hefjast á morgun.

    Einkar veglegur þáttur frá BLE bræðrum þennan fimmtudaginn.


    Fyrsti hálftíminn tileinkaður NBA deildinni. 

    Svo Íslenski boltinn þar sem þeir Heiðar Snær og Egill Birgis fara yfir úrslitin og stemmninguna. Þá kom Helgi Freyr Margeirsson, Tindastólsgoðsögn og einn af aðstoðarþjálfurum liðsins, í heimsókn sem og Samúel klippari. 

    Hringt í þann Slæma og hann tilkynnti um heimkomu Hilmars í Hauka ásamt því að spá í spilin fyrir komandi úrslit. 

    1 hr 31 min
  • Boltinn Lýgur Ekki - Þrjár kúlur í kassann á Króknum, slúðrað án ábyrgðar og Kyrie Irving er búðingur

    BLE bræður í feyknastuði þennan fimmtudaginn. Byrjuðu á því að rýna í úrslitakeppni NBA. Er Jayson Tatum besti kani NBA? Fara Warriors alla leið?


    Svo var það Íslenski boltinn. Rýnt í allar þær seríur sem eru eftir, karla og kvennamegin. Þórsarar jarðaðir, Valur hafðir upp til skýjanna, þurftu Stólar einfaldlega extra þrjár kúlur? Svo var slúðrað síðustu 20 mínútur án ábyrgðar. 

    1 hr 25 min
  • Boltinn Lýgur Ekki - Ferðasaga úr Skagafirði, undanúrslitin og hringt í lagahöfunda

    BLE bræður eldhressir þennan fyrsta sumardag. 


    Fyrst var farið í 360° greiningu á Sauðárkróksferðinni sem var farin um síðustu helgi. Molduxamótið, sveitaball og yfirprjón. Og auðvitað Oddaleikur. 

    Svo var farið í NBA, allar seríurnar í úrslitakeppninni og stóru sögulínurnar. 

    Síðasti klukkutíminn er svo íslenski boltinn. Hringt í höfunda tveggja bestu stuðningsmannalaga íslandssögunnar, þá Ástþór Óðinn og Helga Sæmund. 

    Fóru svo djúpt í undanúrslitin með þeim Slæma, Steinari Aronssyni.

    1 hr 37 min
  • Boltinn Lýgur Ekki - NBA, úrslitakeppnin og orð skulu standa

    BLE bræður í feiknastuði þennan Skírdaginn. Allir í fríi og þá fara þeir að vinna. 


    Fyrsti hálftíminn er helgaður NBA, umspilið, úrslitakeppnin, All NBA liðin og fleira. 

    Svo er komið að Íslenska boltanum. Allar seríurnar teknar fyrir, 1. deildin líka og úrslitin þar sem eru að hefjast. Aðeins farið yfir þjálfarakapalinn sem er í uppsiglingu. Hringdum í tvo Keflvíkinga til þess að tékka á stöðunni fyrir leik 4 sem er í kvöld(fimmtudag).

    Þættinum lokað á frábærum nótum. Ferðin á Sauðárkrók er staðfest um helgina. Molduxamót, ball og kannski leikur 5. 

    1 hr 32 min
  • Boltinn Lýgur Ekki - Verðlaun fyrir tímabilið, hringt í Dósina og greining á fyrstu umferðinni

    BLE bræður fengu þann Eldfima og Þann Höggþunga til sín til þess að veita verðlaun fyrir tímabilið í alls konar flokkum. 


    -Leikmaður ársins í öllum deildum
    -Búðingur ársins
    -Ekkiferð ársins
    -Móment ársins
    -Skita ársins
    -Svissneskur vasahnífur ársins
    -Sneypuför ársins
    -Takk en nei takk ársins 

    og miklu fleiri flokkar. 

    í fyrri klukkutímanum var hringt í Dósina eftir frækinn sigur í 2. deildinni og fyrstu fjórir leikirnir í úrslitakeppninni greindir. 

    1 hr 47 min
  • All time lið Grindavíkur, BLE bræður í Skagafjörð og það verður úrslitakeppnis-Vorkvöld í Vesturbænum

    BLE bræður voru í fáránlegu stuði þennan fimmtudaginn. 


    Fyrsta hálftíman fóru þeir yfir úrslitakeppni neðri deildanna og NBA deildina. Mun Sá Slæmi verða dósaður eins og allir aðrir í vetur eða verður þetta 2007 Patriots tímabil hjá Dósinni og Ármann?

    Fengu svo til sín frábæran gest til þess að velja besta Grindavíkurlið sögunnar, sjálfan Egil Birgisson. Fimm leikstöður, sjötti maður, handklæðaveifari og þjálfari. Hverja velur hann? 

    Svo var vaðið í Subwaydeild karla með Agli. BLE bræður eru á leiðinni á Krókinn í playoffs, Eru Njarðvík of gamlir? Valsmenn of leiðinlegir? Mun Hjalti í Keflavík láta besta leikmanninn sinn fá boltann og munum við ekki örugglega fá úrslitakeppnisbolta á Meistaravelli? 

    1 hr 50 min

About Boltinn lýgur ekki

From the publisher's feed

Körfuboltaþátturinn Boltinn Lýgur Ekki, sem hefur verið leiðandi í körfuboltaumfjöllun á Íslandi, er kominn á Suðurlandsbrautina, heimili körfuboltans á Íslandi.Fjallað er um móður allra íþrótta á…

More shows like Boltinn lýgur ekki

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

22 Listeners

Þungavigtin by Tal

Þungavigtin

20 Listeners

Einn Tveir by Gula Spjaldið

Einn Tveir

2 Listeners