Börkurinn

Börkurinn

By Ásgeir B. ÁsgeirssonMusic
Download on the App Store

Börkurinn episodes

  • #15 Inga Birna Ársælsdóttir
    Inga Birna er ein af okkar fremstu glímukonum. Hún er brúnbeltingur í Brasilísku Jiu-Jitsu, einkaþjálfari og all around bad ass! Ég byrjaði viðtalið á smá fanboy momenti þar sem ég tjáði henni að hún væri uppáhalds glímarinn minn. Hún hefði vissulega getað labbað út en hún ákvað að sitja aðeins lengur og úr varð frábært og mjög fræðandi spjall! Ræddum hvar glímu áhuginn byrjaði, mikilvægi styrktarþjálfunar, virðingar kúltúrinn í bardaga íþróttum, næringarfræði, mat og matseld og margt margt fleirra! Inga Birna er næsti gestur minn í Börkurinn Hlaðvarp.
    1 hr 12 min
  • #14 Eyrún Telma Jónsdóttir
    Eyrún Telma er næsti gestur minn í Börkurinn Hlaðvarp. Það sem hefur alltaf hrifið mig við bæði hana og mannin hennar, Rúnar Geirmunds, er hversu hreinskilinn og opinn þau eru með lífið almennt. Það eru engin vandamál einungis lausnir. Ræddum nýafstaðna giftingu, fimleika, lyftingar, lífið með Endómetríósu, glasafrjóvgun, ástina á Grundarfirði, húðflúr og margt fleirra. Opið, einlægt og áhugavert spjall! Takk fyrir mig Eyrún!
    1 hr 16 min
  • #13 Þórsteinn Sigurðsson
    Ljósmyndarinn Þórsteinn Sigurðsson er næsti gestur minn í Börkurinn Hlaðvarp. Að fanga íslenskan raunveruleika, í myndum, er hægara sagt en gert. En ef ástríðan og það að vera ekki sama um hlutina er til staðar, þá eru allir vegir færir. Við ræddum Container Society, Juvenile Bliss, frú Ragnheiði, veganisma, húðflúr, hip-hop og margt fleirra. Stórskemmtilegt spjall við hella áhugaverðan gaur!
    1 hr 19 min
  • #12 Atli Fannar Bjarkason
    Fyrstu kynni mín af Atla Fannari var í gegnum pönk rokk hljómsveitina Hölt Hóra. Hann byrjaði þó snemma að grúska í fjölmiðlageiranum. Fyrst sem penni hjá héraðsfréttablaði, svo varð hann ritstjóri Monitor og seinna meir stofnandi og eigandi vefmiðilsins Nútímans. Töluðum um Höltu Hóruna, hvar áhuginn á fréttamennsku byrjaði, málefnaleg og ómálefnaleg tíst, pólítík, geðveikina sem fylgir því að stofna fyrirtæki, heilsu / hreyfingu og margt margt fleirra. Stórskemmtilegur, málgóður ( bjó til þetta orð ) og áhugaverður gaur sem hefur gert allan andskotan! Forréttindi að fá að spjalla við Atla og skyggnast inn í heim fjölmiðlamanns. Atli Fannar Bjarkason er næsti gestur minn í Börkurinn Hlaðvarp.
    1 hr 18 min
  • #11 Bjarki 'The Kid' Ómarsson
    Bjarki Ómarsson er einn af okkar fremstu MMA bardagamönnum. Hann stundaði ýmsar íþróttir á sínum yngri árum en innst inni blundaði alltaf áhugi á bardagaíþróttum. Hann byrjaði frekar snemma að sækja í það sem Mjölnir hafði upp á að bjóða og hefur ekki litið í baksýnis spegilinn síðan þá. Hann hefur stóra drauma og fyrsta skrefið tók hann á síðasta ári þegar hann barðist sinn fyrsta atvinnumanna bardaga. Við ræddum upphafið, nautnina að lemja á eldri andstæðingum, meiðsli, hvernig atvinnubardagamaður æfir & lifir, fyrirmyndir, hugsanlega búsetu erlendis, Bolamótið part 2 og margt margt fleirra. Ekki láta þetta andlit plata þig, maðurinn er mean motherfucker. Bjarki 'The Kid' er næsti gestur minn í Börkurinn Hlaðvarp.
    1 hr 30 min
  • #10 Andri & Ólafía x Immortal
    Andri og Ólafía eru eigendur tattoo stofunar Immortal. Immortal er svolítið sér á báti hérlendis hvað varðar allt ferlið sem fylgir því að fá sér húðflúr. Þau leggja mikið upp úr því að upplifunin allt frá byrjun og til enda sé ánægjuleg, viðskiptavinurinn fær verk sem skapað er frá grunni og umhverfið er þess eðlis að upplifunin verður sjálfkrafa jákvæð. Eins og þau segja sjálf þá eru þau alveg svart og hvítt. Andri sér um allt sem tengist rekstrinum og Ólafía fær að njóta þess að vera listamaðurinn sem hún er. Þetta endurspeglast klárlega í því hversu faglegur reksturinn er. Ef einhver heldur að tattoo búllur séu allar sveittar og staðsettar niður við höfn ættu að kynna sér starfsemina á Immortal. Mér fannst stofan fáranlega spennandi í undirbúningnum fyrir spjallið okkar góða og álit mitt á henni hækkaðu 100 falt eftir að hafa rætt hlutina í tæpa 2 tíma. Auk þess eru þau bæði algert topp fólk, metnaðarfull og vita klárlega hvernig þau vilja koma listini frá sér!
    1 hr 43 min
  • #9 Katrín & Urður x Hórmónar
    Katrín og Urður eru tvær af fimm meðlimum hljómsveitarinnar Hórmóna. Hljómsveitin vann músíktilraunir árið 2016 og það er óhætt að segja að á seinustu tveimur árum hefur verið brjálað að gera. Tónleikar hérlendis, work-shop á vegum músíktilrauna erlendis, Airwaves og það að átta sig á því hvað fylgir því að vera eftirtektaverkt band á Íslandi. Upphafið, skyndileg frægð, tilfinningar ofar hæfni, listræn tjáning og upptökur á plötu sem gefinn verður út 24 ágúst er aðeins fátt af því sem við spjölluðum um. Ótrúlega gaman að tala við fólk sem hefur skýra sýn og sterkar skoðanir á samfélaginu sem við búum í. Í þessu tilviki er tónlistin grundvöllurinn sem Hórmónar nota og þau gera það heldur betur vel!
    1 hr 8 min
  • #8 Guðjón Svansson
    Ef ég ætti fullt fullt af peningum myndi ég ráða Gaua í fullt starf sem lífstíls-þjálfarann minn. Alveg frá því við kynntumst höfum við getað spjallað og rætt hlutina í þaula. Viðfangsefnið er vítt, en við eigum það sameiginlegt að vera miklir spekúlantar þegar kemur að almennri heilsu og hugarfarslegum þáttum tengdum íþróttum og lífinu. Munurinn á mér og Gaua er að hann er vel lesinn, hefur prufað allan fjandann sjálfur og talar af reynslu. Ég hinsvegar, ríf bara kjaft. Ræddum hvar áhugi hans á heilbrigðu líferni byrjaði, ketilbjöllurnar, að njóta ferðalagsins, ávinninginn sem getur fylgt því að ferðast og mikilvægi þess að vera stanslaust að skora á sjálfan sig. Gleymið öllum út úr filteruðum Instagram aðgöngum þar sem lífið virkar frábært og yndislegt. Hugsjónin hans Gaua er einföld, framkvæmanleg, árangursrík og öllum fær. Gaui er minn næsti gestur í Börkurinn Hlaðvarp.
    1 hr 38 min
  • #7 Steinar Fjeldsted
    Motherfucking Stoney maður. Steina þekkið þið flest sem einn af meðlimum Quarashi, en það er svo mikið meira á bakvið nafnið eins og ég fékk að kynnast í því frábæra spjalli sem við áttum. Honum er annt um hlutina sem eru nálægt hjarta hans. Hjólabretti, tónlist & götutíska er það sem fær hann til tikka og það er óhætt að segja að lífið hans snúist 24/7 um þessa þrjá hluti! Fórum yfir Quarashi tíman, albumm.is, Skugga Reykjavík, hjólabretta menninguna á Íslandi og margt margt fleirra. Hálf súrrealískt að fá að spjalla við Steina og skyggnast inn í þá stór skemmtilegu hluti sem hann er að taka sér fyrir hendur.. en ég tek því heldur betur fagnandi!
    1 hr 27 min
  • #6 Finnbogi & Jón x Une Misère
    Finnboga og Jón þekki ég úr Íslensku þungarokks senunni. Þeir eru meðlimir í hljómsveitinni Une Misère sem hefur heldur betur látið til sín taka á seinustu tveimur árum. Þeir hafa verið iðnir á þessum tíma og spilað á stórum hátíðum bæði innanlands og erlendis. Bandið er stórhuga og með skýra sýn á hvað það vill ná fram og afreka í náinni framtíð. Upphafið, tour-life, heilbrigður lífstíll, þungarokk í nútíma samfélagi, fortíðin, hip hop og tónleikar í portinu á Prikinu er aðeins hluti af því sem við töluðum um. Finnbogi & Jón eru næstu gestir mínir í Börkurinn Hlaðvarp.
    1 hr 16 min

About Börkurinn

From the publisher's feed

Áhugavert fólk, áhugaverðar sögur.