Share Bragðheimar
Share to email
Share to Facebook
Share to X
Við fáum að kynnast Siffa Haralds sem hefur heimsótt hátt í 600 veitingastaði hér á landi á síðustu 5 árum. Hröð en ítarleg yfirferð um helstu hverfis-laumurnar í Reykjavík og nágrenni, nýir eigendur á Yndisauka, njálgur á Kaffi Laugalæk og fleira sniðugt!
Bragðheimar eru uppi með sér eftir áhrifamikið spjall við ástríðukokkinn Pöttru Sriyanonge, sem deilir með hlustendum sinni listrænu nálgun á matreiðslu. Pattra elst upp við tælenska matargerð og sækir áhrifin mikið þaðan. Áhrifin sækir hún einnig frá þeim löndum sem hún hefur búið í, en þau eru ansi mörg. Pattra deilir með okkur rosalegum uppskriftum, Haxmundi Axeli og ýmsu fleira sem þú vilt ekki missa af.
Þátturinn er í boði Brauð & co, Blómstra, Ölgerðarinnar og Krónunnar.
Landsmót kássa og hægeldunar, Reykjavík Fusion og öll smjör ástin með flottustu Unni Birnu Backman. Stútfullur þáttur af kennsluefni og elegans!
Hvað borðar meistari í matarmenningu í þynnkunni? Stefnir ísbíllinn í gjaldþrot og afhverju er enginn að fá sér kókflot í dag? Fyrir hvað standa samtökin "slow food" og hvernig má það vera að þau standa ekki fyrir hægeldun?
Fanney Dóra er kokkur á heimsmælikvarða. Hún segir okkur frá ævintýrum sínum hjá Jamie Oliver og skólar okkur til í ostum, brauðtertum og íslenskum kryddjurtum. Hún segir meðal annars frá þeirri vannýttu auðlind sem grásleppan er, og hvernig hægt er að nýta hana til góðs. Ofboðslega fróðlegt og skemmtilegt spjall við þennan landsliðskokk sem hefur marga fjöruna sopið.
Snerpa, gæði og matarleiðsögn í boði áhrifavaldsins og framkvæmdastjórans Guðnýjar Ljósbrár.
Við fengum loksins að kynnast drottningu heimilishaldsins, Sólrúnu Diego. Hvernig viðhelduru vikumatseðli, signature eftirréttur Sólrúnar, heimilismatur æskunnar, endalaust af Haxmundum og svo margt fleira. Skemmtilegt og einlægt spjall með þessari góðu geit.
Sax, sull og stemning með Haxmundi Tæknitæfudóttur. Anna Fríða Gísladóttir, kom sá og saxaði. Endurmörkun sólþurrkaða tómatsins, framandi mömmumatur og endalaus stemning.
Loksins er siðferðislega samþykkt að versla við Melabúðina á ný. Smakkland á Laugavegi 55, endurmörkun svínsins og ný gildi Bragðheima á haustönnn 2024.
Bragðheimabínurnar Eva & Solla líta yfir farinn veg og þræða leiðina norður yfir alvöru mauli. Hvar er best að stoppa á leiðinni norður, er gott að dæna á Akureyri og afhverju er enginn veitingastaður búinn að bjóða okkur út að borða? Standard, takk!
The podcast currently has 23 episodes available.
148 Listeners
223 Listeners
134 Listeners
22 Listeners
28 Listeners
93 Listeners
32 Listeners
31 Listeners
23 Listeners
23 Listeners
11 Listeners
12 Listeners
13 Listeners
7 Listeners
1 Listeners