Bransakjaftæði

Bransakjaftæði

By TónlistarmiðstöðMusic
Download on the App Store

Bransakjaftæði episodes

  • Ólafur Arnalds – Bransakjaftæði með Bergþóri Mássyni

    Ólafur Arnalds er einn árangurríkasti tónlistarmaður Íslands. Lögin hans streymast í milljónatali á Spotify og uppselt er á tónleika um allan heim. Hérna talar Ólafur um praktísku hlið ferilsins síns. Hvað þurfti hann að gera til þess að komast á þann stað sem hann er á í dag? Hvernig er að túra um heiminn? Hvernig er að vinna með stórum plötufyrirtækjum? Hvernig er að reka svona batterí sem vinsæll tónlistarmaður er? Rætt er um fólkið sem kemur að þessu öllu saman; aðstoðarmenn, umboðsmenn, bókara, útgefendur og forleggjara.

    Bransakjaftæði er hlaðvarpshluti Tónatals, sem miðar að því að efla þekkingu þeirra sem starfa við tónlist og stuðningsumhverfi þeirra. Bransakjaftæði er unnið í samvinnu við Útvarp 101 og Bergþór Másson er þáttarstjórnandi annarrar seríu. Tónatal er samstarfsverkefni ÚTÓN, Tónlistarborgarinnar Reykjavík, STEF, SFH og Íslandsstofu. Ef þú hefur áhuga á að vita meira um geirann eða hefur einhverjar fyrirspurninr, endilega hafðu samband við okkur: [email protected].

    Frekari upplýsingar á: www.tonatal.is

    1 hr 14 min
  • Tengslanetið - hvað er það?
    Í þessum þætti af bransakjaftæðinu, spjallar tónlistarkonan Hanna Mía við Mariu Rut hjá tónlistarborginni Reykjavik, en hún var umboðsmaður m.a. Ásgeirs Trausta í nokkur ár og hjálpaði honum af koppnum á klóið, um tengslanetið sem er svo nauðsynlegt í tónlistargeiranum.
    57 min
  • Útgáfusamningar (1. hl.)
    Það er auðvelt að fá stjörnur í augun þegar einhver vill að gefa út tónlistina þína. En samt er auðvelt að gera mistök ef þú skilur ekki innihald samningsins. Sóveig Matthildur úr Kælunni Miklu spjallar við reynslunboltann Ásmund Jónsson um útgáfusamninga. Til dæmis hvað eru algengustu mistökin og hvernig þú getur forðast þau.
    Hlustaðu á Spotify, Apple Podcasts, eða hvar sem þú nálgast hlaðvörp.
    45 min
  • Tónleikaferðalög (2.hl)
    Hér í fyrsta þætti, spjallar Magnús Thorlacius (Myrkvi) við reynsluhaukinn Svavar Knút um tónleikaferðalög sem tónlistarfólk bókar sjálft og framkvæmir.
    Svavar hefur verið duglegur að flengjast um allar jarðir og spila fyrir fólk og hefur smíðað sér dágóðan og dyggan áheyrendahóp, um allar trissur.
    Hlustaðu á Spotify, Apple Podcasts, eða hvar sem þú nálgast hlaðvörp.
    32 min
  • Tónleikaferðalög (1.hl)
    Hér í fyrsta þætti, spjallar Magnús Thorlacius (Myrkvi) við reynsluhaukinn Svavar Knút um tónleikaferðalög sem tónlistarfólk bókar sjálft og framkvæmir.
    Svavar hefur verið duglegur að flengjast um allar jarðir og spila fyrir fólk og hefur smíðað sér dágóðan og dyggan áheyrendahóp, um allar trissur.
    Hlustaðu á Spotify, Apple Podcasts, eða hvar sem þú nálgast hlaðvörp.
    34 min
  • Tónlistarréttindi (2. hl.)
    Ekki missa af tækifærinu til að fá tekjur af tónlistinni þinni. Í framhaldinu af samtali Gúðrúnar og Sævars um höfundarrétt er rætt um að skrá verkin sín rétt, til þess að geta fengið greitt fyrir tónlistina sína.
    Hlustaðu á Spotify, Apple Podcasts, eða hvar sem þú færð þín hlaðvörp.
    26 min
  • Tónlistarréttindi (1. hl.)
    Hver er munurinn á master og publishing réttindum? Hvað þýðir þetta tal, er þetta búið til af lögfræðingum, eða geimverum? Við bjóðum Guðrúnu Björk (STEF) og Sævari Helga (S.hel) að spjalla saman um einhver mikilvægastu (og vanmetnustu!) hugtökin í tónlistabransanum.
    Hlustaðu á Spotify, Apple Podcasts, eða hvar sem þú nálgast þín hlaðvörp.
    40 min
  • Markaðssetning
    Hvað hefur áhrif á að tónlistarfólki gangi vel? Þeir sem semja tónlistina vilja oft trúa því að gæði tónlistarinnar sé mikilvægasti hluturinn og að góð tónlist muni alltaf finna sér leið til fólks. Fólk segir oft að góð tónlist markaðssetji sig sjálf… Þó að það séu til einhver dæmi um þetta þá er þetta ekki besta leiðin til að fá athygli á tónlistina sína. Því að aðal punkturinn er að - markaðslega séð - þá skiptir ekki máli hversu góð tónlistin er ef enginn heyrir hana.
    Hlustaðu á Spotify, Apple Podcasts, eða hvar sem þú færð þín hlaðvörp.
    47 min
  • Styrkir og sjóðir
    Styrkir! Umsóknir! Peningar! Það vantar alltaf fjármagn þegar maður er sjalfstætt starfandi tónlistarmaður, en hvernig fæ ég peninga? Við buðum Bjarna Daníel úr Post-Dreifing og Signýju Leifsdóttir að spjalla saman um sjóðakerfið, hvernig fólk á að sækja um, og hvernig á að fá aðstoð með umsóknir.
    40 min

About Bransakjaftæði

From the publisher's feed

Leiðist þér bransakjaftæði? Það þarf ekki að vera leiðinlegt. Geri ég ekki bara geggjaða tónlist og hitt fylgir á eftir? Stundum, en ekki alltaf. Í þessu hlaðvarpi er tónlistarfólk að ræða við fólk í…

More shows like Bransakjaftæði

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

140 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

129 Listeners

Draumaliðið by Jói Skúli

Draumaliðið

12 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

17 Listeners

Þungavigtin by Tal

Þungavigtin

21 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

17 Listeners

Stick to Football by The Overlap

Stick to Football

377 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

16 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

25 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

12 Listeners