Brestur

Brestur

By Birna Sif Kristínardóttir, Bryndís OttesenEducation
Download on the App Store

Brestur episodes

  • 54. Afmælishátíð - Eitt ár af (ATHYGLIS)BRESTI

    Litla ADHD barnið okkar er eins árs!

    Í þætti vikunnar lítum við yfir farinn veg, það sem við höfum lært/ekki lært á fyrsta lífsári Brests, aðdragandann að því að Pilot þátturinn fór í loftið, hvernig við fundum nafn á þáttinn og það helsta sem hefur staðið upp úr í ferlinu.

    Meyrar Brestssystur þakka fyrir móttökur umfram allar væntingar hlustenda síðastliðið ár <3

    ---

    Þáttur vikunnar er í boði Fulfil, VITHIT og My Essential Wardrobe.

    Elle gallann frá MEW má m.a. finna í:

    Garðarshólmi Húsavík

    Paloma Grindavík

    Siglósport Siglufirði

    Gallerí Ozone Selfossi

    Nína Akranesi

    Þú getur hlusta á þrjá auka þætti af Bresti í mánuði og fengið aðgang að ADHD samfélaginu okkar (ó)Skipulag með því að skrá þig í áskrift á www.patreon.com/brestur

    Brestssystur mæla með Loop eyrnatöppum fyrir öll þau sem vilja hlúa að eyrum og geðheilsu með dempuðu hljóðáreiti. Hlustendum býðst 10% afsláttur með kóðanum BRESTUR-AFG6H5, sé verslað í gegnum meðfylgjandi ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠hlekk⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠.

    Samfélagsmiðlar hlaðvarpsins:

    ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠Brestur á Instagram⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠

    ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠Spjallið umræðuhópur⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠

    ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠Brestur á Facebook

    1 hr 1 min
  • 53. Tiltekt í ADHD hausum

    Á þessum síðustu og verstu hafa Birna og Bryndís tekið saman lista af heillaráðum til að komast í gegnum lyfjalausa veturinn mikla. Hvort ráðin séu gagnleg eða hvort þær fylgi þeim sjálfar eftir er svo önnur saga.

    Þá skora þær stöllur á sig með aukinni hausatiltekt, en eru auk þess með háleitar væntingar um að draga hlustendur með sér í allsherjar body-doubling tiltektarverkefni, meira um það á Patreon. Engin pressa samt, það er ekki eins og þær séu viðkvæmar fyrir loddaralíðan (imposter syndrome) og höfnunarnæmni (rejection sensitive dysphoria).

    Rúsínan í pylsuendanum er svo óvænt tónverk úr vinnslu Birnu og HljóðkirkjuBaldurs. Allar líkur á að það endi í Eurovision.

    Þáttur vikunnar er í boði VITHIT og My Essential Wardrobe.

    1 hr 2 min
  • 52. ADHD mótþrói
    Þið sem hafið alltaf velt því fyrir ykkur hversvegna einstaklingar með ADHD eru svona óþolandi erfiðir, þessi þáttur er fyrir ykkur!
    Í þætti vikunnar ræða Brestssystur margar birtingamyndir ADHD mótþróa, hvað veldur honum og ræða svo um það bil 15.000 aðra hluti þess á milli þegar þær gleyma sér og fara út fyrir efnið.
    1 hr 1 min
  • 50. Skrítnar staðreyndir um ADHD
    Þátturinn sem næstum því aldrei varð því sumar gleymdu upptökugræjum í öðru bæjarfélagi.
    Við vitum margt um ADHD en þó er alltaf hægt að læra eitthvað nýtt og skemmtilegt. Brestssystrum þótti því tilvalið að skoða skrítnar og mis skemmtilegar staðreyndir tengdar ADHD.
    Í þætti vikunnar létu þær sig þó líka dreyma um lífið með góða stýrifærni, ræddu óvæntar nýjungar í hártísku grunnskólabarna og Birna fékk minnimáttarkennd yfir þekkingarleysi á tedrykkju.
    59 min
  • 49. ADHD kulnun

    Við erum búnar að fresta þessum þætti í næstum því ár en haustlægðirnar sem herja á okkur Íslendinga öskruðu á umræðuna: ADHD og kulnun.

    Er fólk með vægan heilaskaða líklegra til að lenda í kulnun/örmögnun? Hvað veldur því að við erum líklegri til að spóla yfir okkur og leita okkur seinna hjálpar ?

    Þurfum við liðveislu?

    Brestssystur ræddu í 49. þætti um helstu einkenni örmögnunar, gagnleg bjargráð og það sem Birna hefði viljað vita árið 2021.

    1 hr 30 min
  • 48. Hitt eða þetta?

    Við rýnum inn í hugarheim Brestssystra og sjáum hversu líkar nú eða ólíkar þær eru í raun. Eru þær launsystur í raun og veru, eða er önnur þeirra frá Venus og hin frá Plútó?

    1 hr 19 min
  • 47. Í hjónabandi með ADHD

    Framhald af sambandsþættinum átti að vera stuttur og laggóður þáttur, en varð það svo alls ekki.

    Birna og Dísa lögðu spurningar fyrir sambýlismenn sína varðandi áskoranir þess að búa með ADHD heila. Ekki er vitað hvort Brestssystur séu enn giftar eftir upptöku þáttarins.

    1 hr 41 min
  • 46. Getuleysi heilans

    Í þætti vikunnar kynntu Brestssystur komandi áskriftarpakka til leiks. Þar voru þær þó rétt að byrja og fljótt og örugglega fór Birna að leggja drög að sértrúarsöfnuðinum Móður náttúru, Bryndís að opna sig um curly girl method áráttu og farið var í gegnum sameiginlegt tilfinningaúrvinnsluátak pylsufrekjukasts.

    Þáttur vikunnar er semsagt stútfullur af allskyns fróðleik og fíflalátum eins og aðrar vikur.

    1 hr 18 min
  • 45. Þátturinn um það sem er bannað - á ADHD lyfjum
    Það væri vel séð ef hægt væri að minnka kvart undan lyfjaþyrstu fólki með ADHD í apótekum, handtökur þess á rúntinum og virðingarleysi í sjónvarpinu, svo þetta geti verið síðasti lyfjaþáttur haustsins. En hvað má eiginlega og hvað má ekki á ADHD lyfjum?
    Í miklum galsa ræddu Birna og Bryndís um störf og fleira skemmtilegt sem ekki má sinna á ADHD lyfjum og sömuleiðis störf sem henta vel fyrir ADHD heilann.
    1 hr 14 min

About Brestur

From the publisher's feed

Spjall um allt og ekkert sem fylgir því að vera kona með ADHD

More shows like Brestur

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

129 Listeners