Alfa og Laufey settust niður með Söru Elísabetu Svansdóttur, sveitarstjóra Vopnafjarðarhrepps, sem flutti til Vopnafjarðar frá Reykjavík fyrir tveimur árum. Þær ræddu allt á milli himins og jarðar, en Sara Elísabet kom meðan annars inn á áskoranir þess að taka við sem sveitarstjóri í miðjum kórónuveirufaraldri. Sérstaklega ræddu þær þó lífið í landsbyggðunum, uppganginn á Vopnafirði, tækifærin í kjölfar COVID-19 og ósk Vopnfirðinga um samgöngubætur í formi ganga.
„Svo er auðvitað maðurinn minn héðan og allir vinir hans búa hér enn, og svo er bara allt að yngjast upp hérna, fólk er að flytja aftur hingað með börnin sín. Mér finnst það einmitt svo jákvætt. Það hefur margt breyst frá árganginum sem er barnlaus, núna eru stórir árgangar í skólanum og margir óléttir. Fólk er að kaupa sér hús og fasteignamat að hækka.“
„Þetta er alveg erfitt á veturna, mig langar ekkert að keyra í tvo tíma í óveðri á veturna, á einn fund. Mér finnst bara ágætt að geta bara verið hérna heima, og fundir og svona í boði í fjar. Það er bara jafnræði í því.“