Djöflavarpið

Djöflavarpið

By Rauðu djöflarnirSportsSoccer
Download on the App Store

Djöflavarpið episodes

  • Podkast Rauðu djöflanna – 12. þáttur
    Þáttur nr. 12 er kominn í loftið! Að þessu sinni voru Tryggvi Páll, Magnús, og Björn Friðgeir á línunni. Við byrjuðum á að ræða blaðamannafund Louis van Gaal í gær þar sem hann varpaði fram nokkrum sprengjum, færðum okkur svo yfir í nýju leikmennina þrjá áður en að við enduðum þetta á því að fara yfir æfingaferðalagið til Bandaríkjanna.
    50 min
  • Podkast Rauðu djöflanna – 11. þáttur
    Þáttur nr. 11 er kominn í loftið! Að þessu sinni voru Tryggvi Páll, Magnús, Björn Friðgeir og Sigurjón til tals. Mikið hefur verið rætt um Sergio Ramos í sambandi við möguleg kaup Real Madrid á David De Gea og við fórum rækilega yfir það mál ásamt því að við ræddum almennt um sumarið hingað til hjá United.
    45 min
  • Podkast Rauðu djöflanna – 10. þáttur
    Þáttur nr. 10 er kominn í loftið! Að þessu sinni voru Tryggvi Páll, Magnús, Björn Friðgeir, Runólfur og Sigurjón til tals. Í tilefni þess að tímabilinu lauk í gær ræddum við stöðuna á leikmannahópnum frá A-Ö auk þess sem að við veittum verðlaun í lok þáttarins.
    1 hr 27 min
  • Podkast Rauðu djöflanna – 9. þáttur
    Þáttur nr. 9 er kominn í loftið! Að þessu sinni voru Tryggvi Páll, Magnús, Björn Friðgeir, Runólfur og Elli til tals ásamt því að Sigurjón mætti til leiks í hálfleik. Við spjölluðum um tapleikina þrjá gegn Chelsea, Everton og WBA, tókum snúning á samningamálum David de Gea og ræddum aðeins um væntanleg leikmannakaup:
    1 hr 9 min
  • Podkast Rauðu djöflanna – 8. þáttur
    Gleðilega páska!
    Þáttur nr. 8 er kominn í loftið! Að þessu sinni voru Tryggvi Páll, Magnús, Björn Friðgeir og Sigurjón til tals. Við spjölluðum um gott gengi liðsins undanfarið, sigurleikina gegn Tottenham, Liverpool og Villa, ræddum einstaka leikmenn og spáðum aðeins í leikmannakaupum og sölum sumarsins:
    1 hr 11 min
  • Podkast Rauðu djöflanna og Kop.is
    Í tilefni stórleiks Manchester United og Liverpool á Anfield nk. sunnudag tókum við á Rauðu djöflunum og félagar okkar á Kop.is höndum saman og hituðum við upp fyrir þennan stórleik í sérstökum podkast-þætti!
    Fyrir hönd Rauðu djöflanna mættu Tryggvi Páll og Sigurjón og fyrir hönd Kop.is mættu Einar Örn og Kristján Atli sem stýrði umræðum. Við ræddum um gengi og stöðu Manchester United og Liverpool auk þess sem við spáðum í spilin fyrir stórleikinn á sunnudaginn.
    1 hr 41 min
  • Podkast Rauðu djöflanna – 7. þáttur
    Þáttur nr. 7 er kominn í loftið! Að þessu sinni voru Tryggvi Páll, Magnús, Runólfur og Sigurjón til tals. Við spjölluðum um gengi liðsins undanfarið, tapið gegn Arsenal, spáðum í spilin varðandi næstu leiki auk þess sem við ræddum um Juan Mata, Angel di Maria og Rafael. Þéttur þáttur að þessu sinni.
    1 hr 23 min
  • Podkast Rauðu djöflanna – 6. þáttur
    Þáttur nr. 6 er kominn í loftið! Að þessu sinni voru Björn Friðgeir, Tryggvi Páll, Magnús og Sigurjón til tals. Við spjölluðum um leikinn gegn West Ham, Louis van Gaal og framtíðina. Einnig pældum við aðeins í Wayne Rooney sem miðjumanni og hvað sé eiginlega málið með Adnan Januzaj?!
    1 hr 9 min
  • Podkast Rauðu djöflanna – 5. þáttur
    Þáttur nr. 5 er kominn í loftið! Að þessu sinni voru Björn Friðgeir, Tryggvi Páll, Magnús og Sigurjón til tals. Við spjölluðum um sigurinn gegn Liverpool, jólatörnina, Falcao, Ashley Young, leikina framundan og margt margt fleira.
    1 hr 11 min
  • Podkast Rauðu djöflanna – 4. þáttur
    Þáttur nr. 4 er kominn í loftið! Að þessu sinni mættu Björn Friðgeir, Tryggvi Páll, Magnús, Sigurjón og sérstakur gestur þáttarins Trausti Sig til leiks. Við spjölluðum um síðustu fjóra sigurleiki, Fellaini, Carrick, De Gea, David Beckham, meiðslin, leikina framundan og meira til.
    1 hr 30 min

About Djöflavarpið

From the publisher's feed

Rauðu djöflarnir fjalla um Manchester United frá hinum ýmsu hliðum. Þið finnið okkur á Facebook, Twitter og raududjoflarnir.is