
Sign up to save your podcasts
Or


Leikarinn, fjölmiðlamaðurinn, söngvarinn, Eurovision sérfræðingurinn og lífskúnstnerinn Felix Bergsson fann ungur að árum að það ætti vel við hann að vera á sviðinu fyrir framan fjölda fólks. Felix Bergsson er viðmælandi í Einkalífinu þar sem hann ræðir meðal annars um uppvaxtarárin á Blönduósi, hvernig hann fór frá því að hafa engan áhuga á Eurovision yfir í að heillast algjörlega og verða leiðtogi íslenska hópsins, að koma út úr skápnum, ástina og fjölskylduna, að láta í sér heyra, samstarfið við Gunna sem hefur nú spannað 30 ár, að vera í stöðugri þróun, að fylgja hjartanu og margt fleira.
Kamilla Einars er nýjasti gestur Einkalífsins á Vísi. Hún ræðir meðal annars barnæskuna í Hlíðunum, fjölskylduna sem í eru miklir rithöfundar og innblásturinn að bókum sínum. Kamilla er þekkt fyrir húmor og ræðir eigið hispursleysi á samfélagsmiðlum. Hún ræðir líka veikindi móður sinnar og hvernig fjölskyldan hefur tekist á við þau með jákvæðnina að vopni.
Lífið gjörbreyttist hjá raunveruleikastjörnunni og rapparanum Bassa Maraj þegar hann samþykkti að vera með í einum þætti af Æði. Nú eru seríurnar orðnar fimm og hefur Bassi verið í öllum þáttum. Bassi er viðmælandi í Einkalífinu þar sem hann ræðir um ferilinn, að koma út úr skápnum, ást sína á eldri borgurum og hundum, að leita stöðugt í grínið, óþægilega athygli, föðurmissinn og fleira.
Athafnarkonan Tanja Ýr Ástþórsdóttir er ein af upprunalegu áhrifavöldum landsins en hún var fljót að uppgötva tækifærin sem fylgdu samfélagsmiðlum. Tanja er viðmælandi í Einkalífinu þar sem hún ræðir meðal annars um ástina, lífið í Bretlandi, mikilvægi samskipta, að hafa verið í sviðsljósinu lengi, reynslu sína af Ungfrú Ísland, að halda ákveðnum hlutum fyrir sig, að stofna fyrirtæki, vera óhrædd við áskoranir og ýmislegt fleira.
Óskar Logi er nýjasti gestur Einkalífsins á Vísi. Þar ræðir hann barnæskuna á Álftanesi, stofnun Vintage Caravan og öll sautján árin sem sveitin hefur starfað. Hann ræðir líka sitt persónulega líf, þar á meðal fráfall bróður síns Stefáns Jörgen Ágústssonar sem lést árið 2018 eftir langvarandi andleg veikindi.
Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson er með þekktari lögmönnum landsins og hefur meira að segja fengið viðurnefnið stjörnulögmaðurinn. Hann er viðmælandi í nýjasta þætti af Einkalífinu.
Edda Lovísa Björgvinsdóttir, kvikmyndagerðarkona og fyrrverandi OnlyFans stjarna, ræðir um æskuna, hvernig það var að alast upp í einni þekktustu leiklistarfjölskyldu landsins. Hún talar um árin á OnlyFans, reynsluna af því að framleiða klám fyrir miðilinn og ákvörðun sína um að hætta.
From the publisher's feed

17 Listeners