Hér eru öll innslög vikunnar frá Eldi og brennisteini. Heiðar og Snæbjörn taka fyrir bottomless brunch-ljóskurnar, leikhús Áslaugar Örnu og hvernig Vigdís Hauks þarf bara að brosa meira. Nú er hægt að gerast áskrifandi að Eldi og brennisteini í gegnum t.d. Spotify og Apple Podcasts.
Snæbjörn Brynjarsson (leikhúsgagnrýnandi Rásar 1) og Heiðar Sumarliðason (kvikmyndagagnrýnandi Vísis) ræddu það teater sem dómsmálaráðherra býður upp á þessa dagana.
Hægt er að fá Eld og brennistein beint í snjalltækið t.d. á Spotify og Apple Podcasts.
Nýlega sagði maður einn á Twitter frá þeim afleiðingum sem hann upplifði eftir ljót orð Bubba Morthens þegar hann tók þátt í Idol stjörnuleit. Á Bubbi að biðjast afsökunar?
Snæbjörn og Heiðar eiga báðir von á börnum á næstunni, en Heiðar fékk „áfall“ þegar hann heyrði að hann ætti von á syni. Strákarnir reyna að kryfja málið.
Hægt er að gerast áskrifandi að Eldi og brennisteini á helstu hlaðvarpsveitum.
Heiðar og Snæbjörn eru ekki sammála um hvoru eigi frekar að slaufa, fótbolta eða barferðum. Miley Cyrus leiðir okkur inn í umræðurnar.
Eldur og brennisteinn er nú kominn á helstu hlaðvarpsveitur.
30 min
About Eldur og brennisteinn
From the publisher's feed
Heiðar Sumarliðason og Snæbjörn Brynjarsson eru léttir á bárunni og taka á málefnum líðandi stundar, sem og fortíðar. Ekkert er þeim óviðkomandi og „hot take“ eru þeirra ær og kýr.