Eldur og brennisteinn

Eldur og brennisteinn

Download on the App Store

Eldur og brennisteinn episodes

  • Hurð skall nærri hælum Áslaugar á kaffihúsi
    Heiðar Sumarliðason og Snæbjörn Brynjarsson láta gamminn geysa. Ömurlegt haust, Covid-19, flóttamenn bak við þil, Áslaug Arna lendir „næstum því“ í pólitískum andstæðingi á kaffihúsi og Brynjar Níelsson er leikhúsmaður.
    Eldur og brennisteinn er nú kominn á hlaðvarpsveitur.
    25 min
  • Hlutabréf í elliæru Morgunblaði eru gefins
    Snæbjörn Brynjarsson og Heiðar Sumarliðason ræddu um íslensk stjórnmál, enn og aftur velta þeir fyrir sér hvað sé málið með Eyþór Arnalds, svo pældu þeir í ástandinu á íslenskum fjölmiðlamarkaði, Morgunblaðinu sem er svo úr sér gengið að það þarf að gefa % í því og svo er spurningingin, gekk Dóra Pírati of langt? Eldur og brennisteinn er nú kominn í hlaðvarp.
    34 min
  • Tosa í punginn á feðrum á meðan konan fæðir
    Nú er Snæbjörn að verða pabbi og reynsluboltinn Heiðar leggur honum lífsreglurnar.
    Og hvað er málið með gúmmítöffarann á sellóinu úr Todmobile? Gervipönkarann úr Tappa Tíkarrass? Eyþór Laxdal Kaaber Aspelund Arnalds. Af hverju á hann peninga? Renna öll vötn til Oz?
    10 min
  • 50+ fólkið til skammar á íslenskum hótelum
    Heiðar fór í afmælisferð um síðstu helgi á hótel á suðurlandi. Honum brá heldur betur í brún að sjá aðra gesti sem hegðuðu líkt og þau væru í pakkaferð á Benidorm fyrir Covid-19. Og ekki var það unga fólkið sem virti allar sóttvarnarreglur að vettugi, heldur voru þetta ömmur og afar.
    10 min
  • Almenningur öfundsjúkur út í þyrluprinsessu
    Hvor er klárari/vitlausari, Áslaug Arna eða Kolbrún Reykfjörð? Hvort er Brynjar Níelsson meiri kjáni eða letingi. Af hverju er einhver sauðfjárbóndi félagsmálaráðherra? Af hverju var sonur kvótakóngs sjávarútvegsráðherra? Af hverju fékk Lilja Alfreðs ekki að snýta munaðarleysingjum í S-Kóreu? Það er svo margt skrítið í þessum heimi.
    Eldur og brennisteinn hefur nú ratað í helstu hlaðvarpsveitur.
    36 min
  • Á algjörum bömmer yfir 41 árs afmælinu sínu
    Heiðar er í skýjunum því klósettpappírinn með gula Labrador-hvolpinu er kominn aftur í verslanir Bónus, en minna ánægður með að verða 41 árs. Snæbjörn tekur hins vegar á móti ellinni með opnum örmum. Það er smávegis ójafnvægi í hljóðstyrk til að byrja með, en lagast svo.
    Eldur og brennisteinn er nú kominn á helstu hlaðvarpsveitur.
    11 min
  • Vigdís Hauksdóttir þarf bara að brosa meira
    Heiðar og Snæbjörn ræddu borgarstjórnarmálin, og ráða Vigdísi Hauksdóttur heilt, segja henni að vera hún sjálf. En hver er Vigdís Hauksdóttir? Dagur og Líf fá einnig góð ráð.
    Eldur og brennisteinn er nú kominn á hlaðvarpsveitur.
    29 min

About Eldur og brennisteinn

From the publisher's feed

Heiðar Sumarliðason og Snæbjörn Brynjarsson eru léttir á bárunni og taka á málefnum líðandi stundar, sem og fortíðar. Ekkert er þeim óviðkomandi og „hot take“ eru þeirra ær og kýr.