Eldur og brennisteinn

Eldur og brennisteinn

Download on the App Store

Eldur og brennisteinn episodes

  • Eldur og brennisteinn - Allur þátturinn
    Kári getur ekki hætt að uppnefna fólk, Jóhannes er ekki lengur útskýrari heldur gaslýsari, erlendir glæpahópar og túristar það hættulegasta í dag og samstarf VG og XD er eins og hjónaband þar sem foreldrarnir eru ekki sammála um uppeldisaðferðirnar. Eldur og brennisteinn hefur snúið aftur í hlaðvarp og hægt er að gerast áskrifandi að þættinum á helstu hlaðvarpsveitum. BYKO býður upp á Eld og brennistein.
    1 hr 14 min
  • Eldur og brennisteinn - Allur þátturinn
    Það er allt að verða vitlaust, alls staðar! Róbert Wessman á útopnu, Covid-fangelsi, KSÍ með allt niður um sig og margt fleira. Eldur og brennisteinn er aftur kominn í hlaðvarp og því hægt að fá þáttinn beint í símann með því að ýta á subscribe. Eldur og brennisteinn er í boði BYKO.
    53 min
  • Eldur og brennisteinn - Allur þátturinn
    Snæbjörn og Heiðar velta því m.a. fyrir sér hverjum sé hægt að kenna um fjórðu bylgju Covid, og hvort Frosti Logason hafi farið yfir strikið gagnvart forsætisráðherra. Einnig vilja þeir að eiginkona Helga Seljan taki af honum samfélagsmiðlalykilorðin, svo fjalla þeir um Exit 2 sem er nú hægt að finna á ruv.is, ásamt því að fá óvænta heimsókn frá Securitas. BYKO býður upp á Eld og brennistein.
    1 hr 21 min
  • Hegðun Jóns merki um dýpri samskiptavanda við hópinn?
    Snæbjörn Brynjarsson og Heiðar Sumarliðason veltu vöngum yfir máli kvennalandsliðsþjálfarans. Var þetta handahófskennt fyllerísheilafret Jóns Þórs, eða eru djúpstæð samskiptavandamál milli leikmanna og þjálfara? Einnig, konan sem vildi kaupa milljón króna stól í Pennanum fyrir inneignarnótur. Hjölli málari býður hlustendum upp á Eld og brennistein að þessu sinni.
    34 min
  • Opnaðu ræktina, herra sóttvarnarlæknir!
    Heiðar Sumarliðason og Snæbjörn Brynjarsson láta gamminn geisa um málefni líðandi stundar. Opnið sundlaugarnar! Opnið ræktirnar! Lokið ÁTVR! Bannið afmælisboð! Bannið jólin! Eldur og brennisteinn hugsar í lausnum.
    1 hr 7 min
  • Leiðinlegustu strákarnir æfa fótbolta
    Það sem allir vita en enginn talar um, að leiðinlegustu strákarnir ná alltaf yfirráðum í yngri flokkunum í fótbolta, verða svo fullorðnir og virða Covid-reglur að vettugi. Stelpurnar eru hins vegar að djamma á Zoom.
    Þetta er brot úr nýjasta þætti Elds og brennisteins, en hægt er að hlusta á allan þáttinn með því að smella á Eldur og brennisteinn flipann hér að neðan.
    11 min
  • Bjarni Ben forherðist til að stela Miðflokksfylgi
    Snæbjörn Brynjarsson og Heiðar Sumarliðason ræddu Steingrím Júlía Sigfússon, forsetaembættið og Bjarna Ben, sem vill láta öryrkja borða piparkökur með kílói af pipar. Þetta er brot úr nýjasta þætti Elds og brennisteins, sem hægt er að heyra í heild sinni með því að smella á Eldur og brennisteinn flipann hér að neðan og fara inn á vefsvæði þáttarins.
    12 min

About Eldur og brennisteinn

From the publisher's feed

Heiðar Sumarliðason og Snæbjörn Brynjarsson eru léttir á bárunni og taka á málefnum líðandi stundar, sem og fortíðar. Ekkert er þeim óviðkomandi og „hot take“ eru þeirra ær og kýr.