Englaryk
Download on the App Store

Englaryk episodes

  • Englaryk 28 - Hið fullkomna bisness módel!

    Fyrrum barnfóstra Ben Affleck og Jennifer Garner er komin aftur í fréttirnar, hún vill nefnilega verða stjarna

    Gott hjá henni.

    Barnfóstran er að fylgja hinu fullkomna bissness plani.

    Eins færa vinkonurnar hræðilegar fréttir frá Hollywood og hlæja aðeins af Terrence “babywipes” Howard.

    27 min
  • Englaryk 27 - Tveggja typpa tal

    Englaryks konur lentu í kröppum dansi við tæknina og þurftu að etja kappi við landamæri, tímamismuninn og þráðlaust net en hafið ekki áhyggjur við erum með sjóðandi fréttir af barnfóstrum og fræga fólkinu.

    Er barnfóstra Ben Afflecks í alvöru ólétt? Stay classy Affleck! Ekki sá fyrsti og varla sá síðasti ( I see you Schwarzenegger!)

    Vinkonurnar fara yfir önnur mikilvæg mál eins og typpið á  Lenny Kravitz og leðurbuxunar sem gáfu sig! 

    #Penispopparinn

     

    36 min
  • Englaryk 26 - Endurfundir Englaryks

    Englarykið snýr aftur eftir stutt sumarfrí og endurfundi.

    Við rennum yfir helstu málefnin sem við misstum af eins að og JK Rowling hafi tekið og sveiflað gagnrýnendum Serenu WIlliams og bjóðum upp á englasöng!

     

    0 min
  • Englaryk 24 - Trending: "að drauga*

    Að drauga er ný sögn (e. Ghosting).

    Charlize Theron tók til sinna ráða til a losna við Sean Penn og hætti að svara tölvupóstum, símtölum og sms-um.

    Hvað gerði maðurinn til þess að verðskulda slíka meðferð? Málið rætt í þaula í nýjasta Englaryks-þættinum.

    41 min
  • Englaryk 23 - Krakkar sem eiga ekki sjéns

    Ímyndaðu þér að vera dóttir Whitney Houston og Bobby Brown? Eða dóttir Elvis Presley?

    Það er dágóður hópur af börnum frægra sem áttu aldrei sjéns.  Englaryk fer yfir þann lista. Varúð þetta er þyngsti þáttur stúlknanna frá upphafi.

    44 min
  • Englaryk 22 - Nennir einhver plís að skilja!!??

    Vinkonurnar týna saman fullt af hverjum-er-ekki-sama-fréttum enda lítið að frétta frá Hollywood. Þar eru greinilega allir í sumarfríi.

    Þrátt fyrir tíðindalitla viku kjöftuðu vinkonurnar um Lebron James og „frænda“ hans, svörtu-hvítu konuna, Kristen Stewart og sænsku konungshjónin svo eitthvað sé nefnt.

    Nennir einhver plís að skilja!

    44 min
  • Englaryk 21 - Frægir flugdólgar

    Vinkonurnar náðu loksins saman og fóru beint í stóru málin.

    Nýtt líf Caitlyn Jenner, fræga flugdólga og veltu upp spurningunni hvort að Fassbender væri ofbeldismaður.

    Hann er allavega ekki lengur á I´d hit that listanum.

    Sorrý.

    0 min
  • Englaryk 20 - Er einhver heitari en Tom Hardy?

    Englarykskonur hakka forsvarsmenn Cannes í sig fyrir að meina konum að ganga rauða dregilinn í flatbotnaskóm, tuða yfir aldursfordómum í Hollywood, kveðja David Letterman og  fagna Champagne Gate.

    Stútfullur þáttur af gúmmulaði.

    Njótið.

    33 min

About Englaryk

From the publisher's feed

Vinkonurnar Hanna og Dröfn ræða bransann og stjörnurnar í Hollywood og alls staðar annars staðar og allt þar á milli!